Körfubolti

Annað tap Unicaja í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jón Arnór í leik með Unicaja.
Jón Arnór í leik með Unicaja. vísir/getty
Unicaja Malaga tapaði öðrum leiknum í röð þegar liðið beið í lægri hlut fyrir Cai Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag, 90-86.

Zaragoza byrjaði betur, en staðan var jöfn í hálfleik 42-42. Í síðari hálfleik reyndust gestirnir í Zaragoza sterkari og unnu að lokum fjögurra stiga sigur, 90-86.

Jón Arnór Stefánsson spilaði í rúmar fjórtán mínútur. Hann skoraði fjögur stig, tók tvö fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Unicaja er í öðru sætinu, en Real Madrid er í fyrsta sætinu og stefnir hraðbyri að spænska titlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×