Tvítug framtíðastjarna danska körfuboltans fannst látinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. maí 2015 16:27 Rasmus Larsen. Mynd/basquetmanresa.com
Rasmus Larsen, danskur atvinnukörfuboltamaður í Belgíu, fannst í látinn á heimili sínu í Belgíu í dag en farið var að undrast um hann eftir að hann lét ekki sjá sig á liðsfundi hjá Spirou Charleroi. Þegar Rasmus Larsen lét ekki sjá sér á liðsfundinum fóru starfsmenn Spirou Charleroi heim til hans þar sem þeir komu að honum látnum. Það leit út fyrir að hann hafi látist í svefni en enginn veit fyrir víst hver dánarorsökin er en talið er líklegast að hann hafi fengið hjartaáfall.Fréttin um Rasmus Larsen á heimasíðu belgíska félagsins Spirou Charleroi og það er einnig hægt að finna upplýsingar um leikmanninn á síðunni. Belgískir fjölmiðlar hafa heimildir fyrir því að Rasmus Larsen hafi fundið til óþæginda í öxlinni á æfingu liðsins kvöldið áður en liðið er í úrslitakeppninni þessa dagana. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir danskan körfubolta enda á ferðinni framtíðarstjarna danska landsliðsins sem var líklegur til að spila stórt hlutverk með landsliðinu næstu árin. Rasmus Larsen var 212 sentímetrar á hæð og þótti einn besti leikmaður Evrópu í 1994-árganginum en hann hafði reynt fyrir sér á Spáni áður en hann samdi við belgíska félagið í október síðastliðnum. Charleroi-liðið átti að mæta Ostend í kvöld í fyrsta leik liðanna í undanúrslitunum belgísku úrslitakeppninnar en leiknum hefur verið frestað þangað til á föstudaginn. Rasmus Larsen lék með Hauki Helga Pálssyni hjá spænska úrvalsdeildarliðinu Manresa. Larsen var meðal annars með 21 stig og 13 fráköst í fyrstu umferð ACB-deildarinnar 2013-14 tímabilið þá aðeins átján ára gamall. Hér fyrir neðan má sjá tvö myndbönd með Rasmus Larsen.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira