Körfubolti

Sonur Shaq er álíka stór og pabbi sinn en fjölhæfari leikmaður

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Shareef O'Neal, sonur NBA-goðsagnarinnar Shaquille O'Neal, verður vafalítið stjarna í körfuboltaheiminum rétt eins og pabbi sinn.

Hann varð fimmtán ára í byrjun janúar og er kominn yfir tvo metrana. Shareef er stór og sterkur eins og pabbi sinn, kominn yfir tvo metra, en mun hreyfanlegri og fjölhæfari leikmaður.

Shareef spilaði um síðustu helgi með liði sínu California Supreem í Stóra bikarnum í Houston, en hann er á fyrsta ári í Windward menntaskólanum í Los Angeles.

Strákurinn fór á kostum fyrir framan pabba sinn sem flaug til Houston til að sjá leikinn þrátt fyrir að eiga mæta í útsendingu í úrslitakeppni NBA-deildinnar seinna um kvöldið.

Hér að ofan má sjá tilþrif frá þessum stóra og bráðefnilega leikmanni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×