Körfubolti

Óvænt tap Unicaja

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jón Arnór í leik með Unicaja.
Jón Arnór í leik með Unicaja. vísir/getty
Jón Arnór Stefánsson skoraði þrjú stig þegar Unicaja Malaga tapaði fyrir Rio Natura Monbus í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag, 78-66.

Unicaja byrjaði vel og var meðal annars 42-33 yfir í hálfleik. Í þriðja leikhluta gekk allt á afturfótunum hjá Unicaja og þeir töpuðu honum 21-9.

Þeir náðu ekki að brúa bilið svo í fjórða leikhluta og lokatölur urðu tólf stiga sigur Unicaja 78-66.

Jón Arnór spilaði í rúmar átta mínútur, en hann hitti úr einu af þriggja stiga skotum sínum.

Unicaja er enn í öðru sætinu, en Monbus í því ellefta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×