Körfubolti

Jón Arnór rauf þúsund stiga múrinn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jón Arnór í landsleik.
Jón Arnór í landsleik. vísir/anton brink
Jón Arnór Stefánsson skoraði sitt þúsundasta stig fyrir íslenska karlalandsliðið í körfubolta í vináttulandsleik gegn Hollandi sem nú stendur yfir í Laugardalshöll.

Fyrir æfingarleikina tvo gegn Hollandi vantaði Jóni Arnóri nítján stig til að rjúfa mjúrinn. Hann skoraði fimmtán á föstudaginn og opnaði leikinn á þrist í dag.

Sjá meira: Kemur þúsundasta stig Jón Arnórs gegn Hollendingum?

Hann kom svo Íslandi í 7-4 og skoraði þar með sitt þúsundasta stig fyrir íslenska körfuboltalandsliðið, en leikurinn stendur nú yfir.

Hægt er að fylgjast með leiknum í beinni lýsingu á Vísi, en lýsinguna má lesa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×