Körfubolti

Jón Arnór kveður Malaga

Jón Arnór í leik með Malaga.
Jón Arnór í leik með Malaga. vísir/afp
Íþróttamaður ársins, Jón Arnór Stefánsson, verður ekki áfram í herbúðum Unicaja Malaga í vetur.

Hann tilkynnti á Twitter í dag að hann yrði ekki áfram hjá félaginu og þakkaði stuðningsmönnum félagsins fyrir góðar stundir.

Þessi víðförli körfuboltamaður þarf því að pakka niður enn eina ferðina.

Hann lék með CAI Zaragoza í þrjú ár áður en hann fór til Malaga. Þar á undan var hann í tvö ár hjá Granada. Hann hefur einnig leikið með Benetton Treviso, Lottomatica Roma, Pamesa Valencia, Carpisa Napoli, Dynamo St. Petersburg, Trier og Dallas Mavericks á löngum ferli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×