Fótbolti

Pepe gerir nýjan samning við Real Madrid

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Pepe er að hefja sitt níunda tímabil hjá Real Madrid.
Pepe er að hefja sitt níunda tímabil hjá Real Madrid. vísir/getty
Pepe hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Real Madrid.

Portúgalski landsliðsmaðurinn hefur verið lykilmaður hjá Madrídarliðinu síðan hann kom til þess sumarið 2007. Tímabilið í ár verður því níunda tímabil Pepes hjá Real Madrid.

Ekki er langt síðan annar miðvörður, Sergio Ramos, skrifaði undir nýjan samning við Real Madrid en hann var sterklega orðaður við Manchester United í sumar.

Pepe, sem þykir ekki barnana bestur inni á vellinum, tvívegis orðið spænskur meistari með Real Madrid, tvisvar sinnum bikarmeistari, einu sinni Evrópumeistari og einu sinni heimsmeistari félagsliða.

Pepe, sem er fæddur í Brasilíu, lék 38 leiki með Real Madrid á síðasta tímabili.

Real Madrid hefur leik í spænsku úrvalsdeildinni á sunnudaginn þegar liðið sækir Sporting Gijón heim.


Tengdar fréttir

Ronaldo keypti íbúð í Trump Tower

Cristiano Ronaldo er búinn að fjárfesta í íbúð í New York og menn velta fyrir sér hvort hann ætli næst í MLS-deildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×