Fótbolti

James Rodriguez ekki með um helgina | Meiddist í landsleik

Kristinn Páll Teitsson skrifar
James fagnar hér einu af mörkum sínum gegn Betis.
James fagnar hér einu af mörkum sínum gegn Betis. Vísir/Getty
Real Madrid staðfesti í gær að James Rodriguez, leikmaður liðsins, væri meiddur eftir að hafa slitið vöðva aftan í læri í æfingarleik Kólumbíu og Perú í vikunni.

Læknir kólumbíska landsliðsins ræddi meiðslin í samtali við kólumbíska útvarpsstöð í gær en hann sagði að ákvörðunin um að taka James af velli hafi aðeins verið tekin til að vernda hann og að meiðslin væru ekki alvarleg.

Real Madrid gaf ekki frá sér hversu lengi hann yrði frá heldur að fylgst yrði með James næstu dagana þegar hann kemur aftur til Madríd úr landsleikahlénu.

James átti frábæran leik í 5-0 sigri Real Madrid á Betis í síðasta leiknum fyrir landsleikjahlé en hann komst tvisvar á blað í leiknum með stórglæsilegum mörkum.

Real Madrid mætir Espanyol í Barcelona um helgina en leikurinn hefst klukkan 14.00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport HD.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×