Axel kom Kanínunum í framlengingu og þar lönduðu þær sigrinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. nóvember 2015 20:17 Axel Kárason. vísir/andri marinó
Íslendingaliðið Svendborg Rabbits endaði tveggja leikja taphrinu sína í kvöld í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta með dramatískum útisigri á Randers Cimbria eftir framlengingu. Craig Pedersen, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, er þjálfari Svendborg Rabbits og með liðinu spilar landsliðsmaðurinn Axel Kárason. Axel Kárason kom leiknum í framlengingu og þar var Svendborg Rabbits á endanum með þremur stigum, 97-94. Axel Kárason var með 8 stig, 8 fráköst og 2 stoðsendingar í leiknum. Svendborg Rabbits liðið byrjaði betur og var 24-21 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Liðið átti hinsvegar slakan annan leikhluta sem Randers-menn unnu 28-19 og voru því sex stigum yfir í hálfleik, 49-43. Axel Kárason var með 4 stig og 3 fráköst í fyrri hálfleiknum. Það er ljóst að hálfleiksræða Craig Pedersen hefur verið vel heppnuð því þriðji leikhlutinn var hinsvegar frábær hjá Svendborg Rabbits. Svendborg Rabbits naði mest átta stiga forskoti í leikhlutanum, vann þriðja leikhlutann 28-17 og var því með fimm stiga forskot fyrir lokaleikhlutann, 71-66. Leikmenn Randers Cimbria skoruðu 10 af fyrstu 14 stigum fjórða leikhlutans og komust aftur yfir um hann miðjan. Axel Kárason jafnaði metin í 83-83 þegar 50 sekúndur voru eftir en hann náði þá sóknarfrákasti eftir þriggja stiga skot. Liðin náðu ekki að nýta lokasóknir sínar og því þurfti að framlengja leikinn. Svendborg Rabbits komst sex stigum yfir í framlengingunni en leikmenn Randers Cimbria náðu að jafna 21 sekúndur fyrir leikslok. Það var samt tími fyrir Claus Magaard að smella niður þristi og tryggja Kanínunum sigurinn.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira