Körfubolti

Hlynur afgreiddi Uppsala

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hlynur í leik með Sundsvall.
Hlynur í leik með Sundsvall. vísir/valli
Hlynur Bæringsson fór á kostum með liði sínu, Sundsvall Dragons, í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Hlynur var yfirburðamaður á vellinum og dró lið sitt að landi í leik sem Sundsvall vann, 79-88.

Hlynur var með tvöfalda tvennu í leiknum. Hann skoraði 19 stig, tók 13 fráköst og gaf 4 stoðsendingar.

Sundsvall komst upp að hlið liðsins í þriðja sæti deildarinnar með þessum flotta útisigri í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×