Jón Arnór mætir ósigraður á gamla heimavöllinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. nóvember 2015 17:30 Jón Arnór Stefánsson í leik með Íslandi á Eurobasket. Vísir/EPA
Jón Arnór Stefánsson og félagar í Valencia reyna að halda sigurgöngu sinni áfram í kvöld þegar liðið heimsækir spænska liðið CAI Zaragoza í Evrópukeppninni. Jón Arnór samdi við Valencia eftir Eurobasket í september og liðið hefur unnið alla þrettán leiki sína á tímabilinu, sjö í spænsku deildinni og sex í Evrópukeppninni. Mótherji kvöldsins er Jón Arnóri vel kunnugur enda spilaði hann með CAI Zaragoza í þrjú tímabil frá 2011 til 2014. Hann mætir því aftur í Prins Felipe höllina í kvöld. Jón Arnór átti flott tímabil með CAI Zaragoza liðinu og var einn af fyrirliðum þess á síðasta tímabili sínu. Hann ætti að fá flottar móttökur í kvöld. Jón Arnór hefur verið í byrjunarliði Valencia í þremur af sex leikjum liðsins í Evrópukeppninni en hann er með 5,3 stig, 1,7 stoðsendingar og 1,2 stolinn bolta að meðaltali á 17,5 mínútum í leik. Jón Arnór skoraði sex stig og stal þremur boltum í fyrri leiknum á móti hans gamla félagi en Valencia-liðið vann hann 87-68. Valencia-liðið hefur þegar tryggt sér sæti í 32 liða úrslitunum en Jón Arnór og félegar eru með eina bestu vörnina í keppninni enda þeir aðeins fengið á sig 66,3 stig í leik til þessa. CAI Zaragoza getur tryggt sig áfram með sigri en þarf þá einnig að treysta á það að Proximus Spirou Charleroi og SLUC Nancy tapi bæði. Andreu Casadevall er nýr þjálfari CAI Zaragoza og stýrir liðinu í fyrsta sinn í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20.30 að spænskum tíma eða klukkan 19.30 að íslenskum tíma.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira