Körfubolti

Senegalskir risar mættust | Eru samtals 462 sentimetrar á hæð

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tveir ansi hávaxnir strákar mættust í háskólakörfuboltanum í Bandaríkjunum í nótt þegar UFC Knights frá Flórída og UC Irvine frá Kaliforníu mættust í Big West-deildinni.

Tacko Fall, sem heitir fullu nafni Elhadji Tacko Sereigne Diop Fall, var að spila sinn fyrsta leik fyrir UFC en Ndiaye er á öðru ári með Irvine-háskólanum.

Ndiaye var kjörinn varnarmaður ársins í deildinni á síðustu leiktíð, en báðir þessir strákar eru fæddir í Dakar í Senegal.

Tacko Fall skoraði sex stig, tók sjö fráköst og varði fjögur skot á 27 mínútum í sínum fyrsta leik í Bandaríkjunum en Ndiaye skoraði fimm stig og tók ekki nema tvö fráköst.

„Nú sé ég hvernig fólki líður þegar það spilar á móti mér,“ sagði Tacko Fall eftir 61-60 tap UFC í framlengingu.

Í spilaranum hér að ofan má sjá baráttu miðherjanna í nótt en hún hóst um leið og boltanum var kastað upp.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×