Handbolti

Auðvelt hjá PSG án Róberts

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Róbert fylgdist með úr stúkunni í kvöld.
Róbert fylgdist með úr stúkunni í kvöld. vísir/afp
PSG náði í kvöld sex stiga forskoti í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Þá vann ofurliðið þægilegan sigur, 43-39, a næstneðsta liði deildarinnar, Tremblay.

Eins og tölurnar gefa til kynna var varnarleikur ekki í aðalhlutverki og PSG gerði bara það sem til þurfti.

Róbert Gunnarsson var ekki í leikmannahópi PSG í kvöld en Nikola Karabatic var markahæstur í liðinu með átta mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×