Handbolti

Ólafur hafði betur gegn Atla Ævari

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafur Andrés Guðmundsson.
Ólafur Andrés Guðmundsson. vísir/daníel
Það var hörkuleikur milli tveggja Íslendingaliða í sænska handboltanum í kvöld.

Þá hafði Kristianstad betur gegn Sävehof, 26-27, í hörkuleik. Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði fjögur mörk fyrir Kristianstad en Atli Ævar Ingólfsson skoraði tvö mörk fyrir Sävehof.

Kristianstad er með yfirburðastöðu á toppi deildarinnar en Sävehof er í áttunda sæti.

Lið Kristjáns Andréssonar vann auðveldan heimasigur á Drott, 37-27, og er í sjötta sæti deildarinnar.

Í danska boltanum skoraði Vignir Svavarsson eitt mark er lið hans, Midtjylland, fékk á baukinn gegn Skanderborg, 27-19.

Midtjylland er í þriðja neðsta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×