Handbolti

Sigurbergur, Egill og félagar gerðu góða ferð til Hollands

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sigurbergur skoraði þrjú mörk í Hollandi.
Sigurbergur skoraði þrjú mörk í Hollandi. vísir/ernir
Sigurbergur Sveinsson skoraði þrjú mörk þegar Team Tvis Holstebro vann tveggja marka sigur, 29-31, á hollenska liðinu Limburg Lions í B-riðli EHF-bikarsins í handbolta í kvöld.

Danska liðið er á toppnum í B-riðli með sex stig eftir fjóra leiki en efstu tvö liðin komast áfram í 8-liða úrslit. Holstebro á tvo leiki eftir í riðlakeppninni.

Sigurbergur skoraði sem áður sagði þrjú mörk úr fimm skotum. Önnur íslensk skytta, Egill Magnússon, kom einnig við sögu í leiknum en bæði skot hans geiguðu.

Danski landsliðsmaðurinn Peter Balling Christiansen var markahæstur í liði Holstebro með tíu mörk en Patrick Wiesmach Larsen kom næstur með átta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×