Handbolti

Guðjón Valur sá eini með hundrað prósent skotnýtingu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson
Guðjón Valur Sigurðsson Vísir/EPA
Íslenski landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson og félagar hans í Barcelona héldu sigurgöngu sinni áfram í kvöld í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Barcelona vann þá 19 marka útisigur á Ciudad Encantada, 42-23. Ciudad Encantada var 27 stigum og þrettán sætum neðar í töflunni fyrir leikinn. Barcelona hefur unnið alla 22 leiki sína í deildinni og er með örugga forystu.

Guðjón Valur Sigurðsson nýtti öll fjögur skotin sína í leiknum, tvö af sex metrunum og tvö úr hraðaupphlaupum.

Guðjón Valur var eini leikmaður Barcelona-liðsins í kvöld sem var með hundrað prósent skotnýtingu. Hann var með bestu skotnýtinguna á vellinum.

Tékkinn Filip Jicha og Makedóníumaðurinn Kiril Lazarov voru markahæstir með sex mörk hvor en Spánverjinn Víctor Tomás og Túnisbúinn Wael Jallouz skoruðu báðir fimm mörk.

Aitor Arino spilaði á móti Guðjóni Val í vinstra horninu og var með 3 mörk úr 6 skotum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×