Hélt lífi í tímabilinu með flautkörfu úr nær ómögulegri aðstöðu | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. júní 2016 16:30 Myndin er úr körfuboltaleik í Frakklandi en tengist fréttinni ekki beint. Vísir/AFP
Bastien Pinault skoraði á dögunum eina ótrúlegustu flautukörfu seinni tíma í úrslitakeppni frönsku b-deildarinnar í körfubolta. Þetta var oddaleikur á milli Evreux og Boulazac um sæti í úrslitaeinvíginu og fór hann fram á heimavelli Evreux. Evreux tapaði fyrsta leiknum á heimavelli en tryggði sér oddaleik með sigri á heimavelli Boulazac í leik tvö. Evreux, lið Bastien Pinault, var að reyna að vinna leikinn á þriggja stiga skoti en liðfélagi hans klikkaði á skotinu. Bastien Pinault náði frákastinu en var kominn í nær vonlausa stöðu fyrir aftan spjaldið og enginn tími til að koma sér í betri stöðu. Bastien Pinault gafst þó ekki upp ráðalaus og skaut fyrir aftan körfuna og boltinn fór rétta leið um leið og lokaflautið gall. Pinault hafði klikkað á öllum sex skotum sínum í leiknum á undan en nú hafði hann heldur betur heppnina með sér. Evreux jafnaði þar með leikinn og tryggði sér síðan sigur í framlengingu. Bastien Pinault skoraði 12 stig á 21 mínútu í þessum leik og hitti úr 4 af 9 skotum sínum. Það voru hinsvegar þessi tvö stig rétt fyrir leikslok sem komu kappanum í heimsfréttirnar. Bastien Pinault og félagar mæta liði Le Portel í lokaúrslitunum. Það er hægt að sjá þessa mögnuðu jöfnunarkörfu Bastien Pinault hér fyrir neðan.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira