Bandarískur erindreki rekinn frá Nýja-Sjálandi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. mars 2017 21:46 Mál erindrekans þykir allt hið dularfyllsta. Vísir/Getty
Bandarískur erindreki hefur verið rekinn úr landi í Nýja-Sjálandi, eftir að bandaríska sendiráðið þar í landi neitaði að afnema friðhelgi hans í kjölfar lögreglurannsóknar. BBC greinir frá. Málið þykir hið dularfyllsta en talið er að umræddur erindreki hafi verið viðriðin atvik sem er til rannsóknar lögreglu þann 12. mars síðastliðinn. Lögregla vildi því fá að yfirheyra manninn en varð frá að hverfa, þar sem maðurinn hefur friðhelgi erindreka. Slíkri friðhelgi var komið á með Vínarsáttmálanum um milliríkjasamskipti árið 1961 og kveður á um vernd erindreka í hverju ríki fyrir sig. Þar með talið fyrir áreiti lögregluyfirvalda. Í kjölfar viðbragða sendiráðsins, fóru ný-sjálensk yfirvöld fram á það við bandarísk yfirvöld að maðurinn yrði sendur úr landi og vikið frá stöðu sinni í Nýja-Sjálandi. Í tilkynningu ný-sjálenska utanríkisráðuneytisins vegna málsins kemur fram að yfirvöld þar í landi fari fram á að allir erindrekar í landinu fylgi lögum landsins. Ekki er ljóst hvað nákvæmlega erindrekinn á að hafa gerst sekur um en samkvæmt heimildum þarlendra fjölmiðla yfirgaf hann landið með brotið nef og glóðurauga. Sendiráðið, sem er án sendiherra, þar sem ríkisstjórn Donald Trump á enn eftir að útnefna slíkan, segir í tilkynningu að það líti brot starfsliðs síns á landsreglum alvarlegum augum og að farið verði yfir atvikið.
Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Innlent Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Erlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Fleiri fréttir Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Sjá meira