Milljón manns fylgdist með gíraffakálfi koma í heiminn Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 16. apríl 2017 10:18 Meðganga gíraffa er 15 mánaða löng. vísir/epa
Rúmlega milljón manns fylgdust með gíraffakálfi koma í heiminn í gær þegar dýragarður í Bandaríkjunum sýndi frá fæðingunni í beinni útsendingu. Móður og kálfi heilsast vel en almenningur mun ekki fá að hitta hinn nýborna fyrr en um miðjan maímánuð. Kálfurinn er karlkyns en ekki hefur verið greint frá hæð hans né þyngd. Nýbornir kálfar eru hins vegar vanalega í kringum 68 kíló og 183 sentímetra. Móðirin, Apríl, er 15 ára og hefur átt fjóra kálfa. Pabbinn, Oliver, er fimm ára og fylgdist hann með á hliðarlínunni þegar hans fyrsti kálfur kom í heiminn í gær. Kálfurinn hefur ekki verið nefndur en til stendur að halda nafnasamkeppni á heimasíðu dýragarðsins.Söfnunin gekk vonum framar Útsendingin hófst í febrúar síðastliðnum og var tilgangurinn að safna fé sem mun renna til góðgerðarstarfa í þágu dýra. Söfnunin fór fram úr björtustu vonum því markmiðið var að safna 50 þúsund dollurum, en alls söfnuðust 134 þúsund dollarar, eða tæplega 15 milljónir íslenskra króna.Enn er hægt að fylgjast með mæðginunum en óvíst er hvenær útsendingunni verður hætt.
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Brenndu rangt lík Erlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Fleiri fréttir Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Sjá meira