Sandra Lind og félagar spila fyrsta leikinn í lokaúrslitum um danska titilinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2017 15:00 Sandra Lind Þrastardóttir er hér númer 15 með félögum sínum úr landsliðinu. Vísir/Ernir
Íslenski landsliðsmiðherjinn Sandra Lind Þrastardóttir og félagar hennar í Hörsholm 79ers eru komnar alla leið í úrslitaeinvígið um danska meistaratitilinn. Leikur eitt er í kvöld. Sandra Lind er aðeins tvítug en er samt búinn að spila marga stóra leiki með Keflavík og íslenska landsliðinu. Hún fór út í nám í vetur og hóf að spila með Hörsholm 79ers. Sandra Lind skoraði 5,3 stig og tók 4,3 fráköst að meðaltali á 17,3 mínútum í undanúrslitaeinvíginu sem Hörsholm 79ers vann 3-0. Besta frammistaða hennar var í síðasta leiknum þar sem hún skoraði 10 stig, tók 7 fráköst og gaf 3 stoðsendingar á 20 mínútum. Sandra Lind fór með Keflavíkurliðinu í lokaúrslitin bæði 2013 og 2015. Hún varð Íslandsmeistari í fyrra skiptið en varð að sætta sig við silfrið fyrir tveimur árum. Hörsholm 79ers mætir deildarmeisturum Virum GO Dream í úrslitaeinvíginu. Virum GO Dream vann 16 af 18 leikjum sínum í deildarkeppninni en hefur tapað einum leik meira en Hörsholm í úrslitakeppninni. Virum GO Dream vann tvo fyrstu leikina á móti Hörsholm í deildinni en í síðasta leik liðanna í byrjun febrúar þá fögnuðu Sandra Lind og félagar 70-59 sigri og það á útivelli. Hörsholm 79ers hefur unnið alla fimm leiki sína í úrslitakeppninni og er því til alls líklegt í lokaúrslitunum.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira