Sex ný ríki kjörin í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna Atli Ísleifsson skrifar 3. júní 2017 10:41 Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundar. Vísir/afp
Sex ný ríki munu taka sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna frá næstu áramótum. Þetta varð ljóst eftir atkvæðagreiðslu í allsherjarþinginu í gær. Kjör Afríkuríkisins Miðbaugsgínu í ráðið hefur verið harðlega gagnrýnt af mannréttindasamtökum. Miðbaugsgínea, Fílabeinsströndin, Kúveit, Pólland og Perú voru öll kjörin í ráðið í atkvæðagreiðslu gærdagsins og munu eiga sæti í ráðinu 2018 og 2019. Holland var auk þess kjörið til að taka sæti í ráðinu eftir að samkomulag náðist um að skipta tveggja ára kjörtímabili með Ítalíu. Alls eiga fimmtán ríki sæti í öryggisráðinu, þar af fimm fastaríki sem öll hafa neitunarvald – Bandaríkin, Rússland, Kína, Bretland og Frakkland. Þá eiga tíu ríki einnig sæti í ráðinu en þau sitja í tvö ár í senn. Ríkin sex sem kjörin voru munu taka sæti Egyptalands, Japan, Senegal, Úkraínu, Úrúgvæ og Ítalíu þann 1. janúar næstkomandi. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafa gagnrýnt að Miðbaugsgínea taki sæti í ráðinu og segja landið glíma við „spillingu, fátækt og kúgun, en Teodoro Obiang Nguema forseti hefur setið þar á valdastóli frá árinu 1979.
Miðbaugs-Gínea Sameinuðu þjóðirnar Senegal Suður-Ameríka Úrúgvæ Mest lesið Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Innlent Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Innlent Egill Þór er látinn Innlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Erlent Gleðileg jól, kæru lesendur Innlent Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? Innlent Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Innlent Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Fleiri fréttir Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Sjá meira