Beraði sig við lögreglumenn og sagði þeim að blása Kjartan Kjartansson skrifar 6. júlí 2017 22:18 Þegar manninum var gert að blása í áfengismæli beraði hann kynfæri sín við lögreglumenn. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki. Vísir/Getty
Dómstóll á Norðvestur-Spáni hefur dæmt ökumann bifhjóls í níu mánaða fangelsi fyrir að flýja lögreglu og svívirða lögreglumenn. Þegar maðurinn var beðinn um að blása í áfengismæli leysti hann niður um sig buxurnar og sagði lögreglumönnunum „að blása“. Atvikið átti sér stað í borginni A Coruña síðla nætur í maí 2015. Lögreglumenn sáu þá til mannsins klöngrast upp á bifhjól sitt og virtist hann eiga erfitt með að halda jafnvægi, að því er segir í frétt spænska blaðsins La Voz de Galicia. Þegar lögreglumenn hugðust stöðva för mannsins gaf hann hins vegar í og lét elta sig um stræti borgarinnar á miklum hraða. För hans lauk þegar hann datt af hjólinu þegar lögreglubílar þrengdu að honum.Sagði að dómarinn gæti líka komið til að blásaMaðurinn brást hinn versti við þegar honum var sagt að hann yrði látinn blása í áfengismæli og kallaði lögreglumennina öllum illum nöfnum. Hótaði hann þeim meðal annars ofbeldi. Neitaði hann svo að blása í áfengismælinn jafnvel þó að honum væri sagt að hann yrði ákærður ef hann gerði það ekki. Þess í stað beraði hann kynfæri sín við lögreglumann og sagði „Blástu hérna“. Þegar manninum var sagt að hann yrði færður fyrir dómara svaraði hann: „Þá getur dómarinn líka komið og blásið hérna.“ Fyrir utan fangelsisdóminn var maðurinn sviptur ökuréttindum í fimmtán mánuði. Hann var einnig dæmdur fyrir að hafa ekið ölvaður öðru sinni mánuði eftir upphaflega brotið og svívirt lögreglumenn aftur.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira