Skoðun

Mannauður

Torfi H. Tulinius skrifar
Mannauður er fallegt orð, geðþekkara en sambærilegt hugtak á ensku: „human resources“, sem gefur í skyn að meðbræður okkar séu auðlind til að nýta. „Maður er manns gaman“ sagði óþekkt skáld Hávamála og í því felst að samferðafólkið auðgar tilveru okkar. Sú auðlegð sem býr í getu manna, þekkingu og hæfileikum hefur gert mannfólkinu kleift að treysta afkomu sína, lengja líf, bæta heilsu og byggja upp siðmenningu sem stundum er býsna fögur.

Í heimi tuttugustu og fyrstu aldar, með öllum sínum tækifærum og áskorunum, skiptir mannauður ekki síður máli en í veröld fornskáldsins. Tækifærin eru mikilfengleg með tækninýjungum, hnattvæðingu og síauknum skilningi á náttúrunni og okkur sjálfum. Áskoranirnar eru gríðarlegar með fólksfjölgun, náttúruvá af margvíslegu tagi, að ónefndri vaxandi misskiptingu auðs með fylgifiskum hennar: óréttlæti og ófriði. Til að nýta tækifærin og takast á við áskoranirnar er þörf fyrir fólk sem hefur verið þjálfað í skipulagðri þekkingarleit og í hugsun sem er í senn gagnrýnin og skapandi.

Það er með öflugu menntakerfi sem þjóðfélög skapa mannauð af þessu tagi, frá leikskóla upp í háskóla. Leik- og grunnskólar búa börnum umhverfi þar sem þau öðlast grunnfærni og eiga að eflast af sjálfstrausti og vinnugleði. Framhaldsskólarnir byggja á þessu starfi, hlúa að almennri menntun ungmenna um leið og þeim er leiðbeint á fyrstu stigum sérhæfingar. Svo tekur æðri menntunin við ýmist sem starfs-, tækni- eða háskólanám þar sem fyrrnefnd þjálfun fer fram. Alls staðar í samfélaginu er mannauður mikilvægur en háskólar hafa sérstöðu því þar er hugað að tækifærum og áskorunum nútíðar og framtíðar með rannsóknum og nýsköpun. Í frumvarpi því til fjárlaga sem liggur fyrir þinginu eru framlög til háskólastigsins enn töluvert lægri en í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Ljóst er að mannauður okkar Íslendinga muni rýrna nema stjórnvöld hætti að svelta háskólastigið.

Alþingi verður að taka fjárlagafrumvarpið til umfjöllunar en hefur nú óbundnar hendur í ljósi þess að stjórn Bjarna Benediktssonar er fallin. Rík ástæða er til þess að hvetja hið ágæta mannval sem situr á þingi til að taka höndum saman og hækka framlög til háskóla í fjárlögum næsta árs og efla með því móti mannauð okkar.

Höfundur er prófessor í íslenskum miðaldafræðum við HÍ.




Skoðun

Sjá meira


×