Sagði ásakanir um kynferðisofbeldi ekki á rökum reistar en biðst nú afsökunar Kristín Ólafsdóttir skrifar 19. nóvember 2017 16:43 Lena Dunham, hefur verið hávær í stuðningi sínum við þolendur kynferðisofbeldis í gegnum tíðina. Vísir/AFP
Bandaríska leikkonan Lena Dunham, sem þekktust er fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttaröðinni Girls, baðst afsökunar á því að hafa komið handritshöfundi þáttanna til varnar. Handritshöfundurinn var sakaður um kynferðisofbeldi í vikunni. Lögreglan í Los Angeles rannsakar nú ásakanir sem bornar hafa verið á hendur einum handritshöfunda sjónvarpsþáttanna Girls, Murray Miller. Leikkonan Aurora Perrineau sakaði Miller nýlega um að hafa nauðgað sér. Lena Dunham, sem fór með aðahlutverk sjónvarpsþáttanna vinsælu, sagðist „fullviss“ um að ásakanirnar væru byggðar á misskilningi og að ekki hefði verið greint rétt frá málinu þegar það birtist fyrst í fjölmiðlum í vikunni. pic.twitter.com/yhC2mvRn1V— Lena Dunham (@lenadunham) November 19, 2017 Dunham, sem í gegnum tíðina hefur verið hávær í stuðningi sínum við þolendur kynferðisofbeldis, var harðlega gagnrýnd fyrir þess ummæli sín og virðist nú sjá eftir þeim. Í færslu, sem hún birti á Twitter-reikningi sínum í gær, sagðist Dunham hafa „í einfeldni sinni“ staðið í þeirri trú að skoðun sín væri mikilvæg en væri nú búin að átta sig á því að ekki hefði verið tímabært að senda frá sér yfirlýsingu um málið. Perrineau sakaði Miller um að hafa nauðgað sér árið 2012, þegar hún var aðeins 17 ára gömul. Miller þvertekur fyrir ásakanirnar.
Bandaríkin MeToo Bíó og sjónvarp Hollywood Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira