Er þetta rautt spjald? Sjáðu umdeild atvik úr leik Selfoss og Hauka Henry Birgir Gunnarsson skrifar 19. febrúar 2018 15:15 Á eftir rauðu kemur blátt. Anton Gylfi vísar Eyvindi hér í sturtu.
Besta dómarapar landsins, Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson, var ekki vinsælasta parið á Selfossi í gær þar sem þeir dæmdu magnaðan leik á milli Selfoss og Hauka. Snemma í fyrri hálfleik ráku þeir Eyvind Hrannar Gunnarsson, leikmann Selfoss, beint af velli með rautt spjald. Umdeildur dómur en Eyvindur fór í andlit leikmanns Hauka. Skömmu síðar fór Haukamaðurinn Adam Haukur Baumruk með handlegginn í andlitið á Atla Ævari Ingólfssyni, línumanni Selfyssinga. Adam fékk aðeins tveggja mínútna brottvísun við litla hrifningu Selfyssinga. Þeir vildu eðlilega fá rautt á Adam fyrst að þeirra maður fékk að líta rauða spjaldið. Hér að neðan má sjá þessi tvö atvik og dæmi hver fyrir sig. Þessi atvik verða klárlega tekin fyrir í Seinni bylgjunni á Stöð 2 Sport klukkan 21.30 í kvöld. Þetta voru alls ekki einu umdeildu dómarnir í leiknum en Haukar voru afar ósáttir undir lokin er Jón Þorbjörn Jóhannsson var rekinn af velli að því er virtist fyrir litlar, eða engar, sakir. Það atvik verður einnig skoðað í þættinum.
Olís-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: Selfoss 26-25 Haukar | Ótrúlegar lokamínútur á Selfossi Selfyssingar slökktu í Haukum eftir æsispennandi lokamínútur. Sigurmarkið tveimur sekúndum fyrir leikslok. 18. febrúar 2018 22:30 Mest lesið Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport Gagnrýnir blaðamann sem gerði grín að útliti hennar Sport Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport Teitur spilaði með manni sem dekkaði Jordan og drakk kippu af bjór fyrir æfingar Körfubolti Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Enski boltinn „Ég vil ekki deyja í sjúkrarúmi heldur í hringnum“ Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Körfubolti Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Enski boltinn Fleiri fréttir Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Fram flaug áfram í bikarnum Sigurjón hættur með Gróttu Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss 26-25 Haukar | Ótrúlegar lokamínútur á Selfossi Selfyssingar slökktu í Haukum eftir æsispennandi lokamínútur. Sigurmarkið tveimur sekúndum fyrir leikslok. 18. febrúar 2018 22:30