Djörf kvikmynd Tómasar Lemarquis vann Gullbjörninn eftir að hafa gengið fram af áhorfendum Birgir Olgeirsson skrifar 25. febrúar 2018 09:03 Philippe Avril, Bianca Oana, Adina Pintilie og Tomas Lemarquis stilla sér upp eftir að myndin Touch me Not hafði unnið til Gullbjarnarins á kvikmyndahátíðinni í Berlín. Vísir/Getty
Kvikmynd rúmenska leikstjórans Adina Pintilie, Touch Me Not, hlaut Gullbjörninn sem besta myndin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín í gær. Myndin er sögð hafa gengið fram af einhverjum áhorfendum á hátíðinni fyrir djörf atriði en nánd og kynlíf er umfjöllunarefni hennar. Annar af aðalleikurum myndarinnar er hinn íslenski leikarinn Tómas Lemarquis, en á vef Ríkisútvarpsins kemur fram að þetta sé í fyrsta skipti sem kvikmynd, sem skartar Íslendingi í aðalhlutverki, vinnur Gullbjörninn.Á vef Reuters er haft eftir leikstjóranum að hún átti alls ekki von á því að vinna til verðlauna fyrir þessa kvikmynd sem hún segir afmá línurnar á milli raunveruleika og skáldskapar. Aðalpersónur myndarinnar leita eftir nánd en óttast hana á sama tíma. Pintilie segir myndina þess vegna geta verið óþægilega fyrir marga áhorfendur. Áhorfendir geti reynst erfitt en á sama tíma séu áhorfendurnir hvattir til að leita inn á við og kanna sitt innra eðli.Wes Anderson hlaut Silfurbjörninn sem besti leikstjórinn fyrir teiknimynd sína Isle of Dogs sem fjallar um íbúa japanskrar borgar sem flytja hunda sína á eyju sem notuð er sem sorphaugur vegna hundaveiki. Bill Murray er einn af leikurunum sem talsetur myndina en hann tók við verðlaununum fyrir hönd Wes Anderson. Hann sagðist ekki hafa átt von á því að fara til vinnu sem hundur og koma heim með björn.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Fleiri fréttir Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Sjá meira