Secret Solstice hátíðinni lýkur nú að kvöldi sunnudags 24. júní. Breski rapparinn Stormzy lokar hátíðinni á stóra sviðinu í kvöld. Þetta er í fimmta skipti sem hátíðin er haldin í Laugardalnum.
Skipuleggjendur segja að hátíðin hafi farið vel fram og að það hafi verið heilt yfir jákvæð og góð stemning í Laugardalnum yfir helgina. Þrátt fyrir það hafði lögreglan afskipti af um þrjátíu einstaklingum vegna vörslu fíkniefna í gærkvöldi.
Skipuleggjendur segja hátíðarsvæðið vera í mun betra ásigkomulagi en við var að búast miðað við veðurskilyrði. Það þakka þeir hátíðargestum og segja þeir umhverfisvitund gesta fara vaxandi og að vel hafi verið tekið í sérstakar ráðstafanir á borð við að flokka rusl sem og að takmarka plastnotkun eftir fremsta megni.
Að sögn fjölmiðlafulltrúa hátíðarinnar voru 15.000 manns á svæðinu og þar með 500 starfsmenn.
Að lokum þakka skipuleggjendur öllum hátíðargestum, samstarfsaðilum, lögreglu, gæslu og starfsfólki Frístundamiðstöðva Reykjavíkur fyrir frábæra hátíð.
Secret Solstice þakkar fyrir sig

Tengdar fréttir

Tugir fíkniefnamála til viðbótar í Laugardalnum í nótt
Alls hafa um sextíu fíkniefnamál komið upp í Laugardalnum þar sem Secret Solstice-tónlistarhátíðin fer fram það sem af er helginni.

Múgæsingur í miðborginni: „Biffinn var tekinn og honum var snúið á hvolf“
Hljómsveitin ClubDub vakti mikla athygli í gær fyrir framkomu sína á Secret Solstice ásamt útgáfuhófi á skemmtistaðnum b5.

Dagskráin á síðasta degi Secret Solstice
Síðasti dagur tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice er í dag og mörg stór nöfn koma fram.

Í takti við það sem gerist á öðrum hátíðum
Björn Teitsson fjölmiðlafulltrúi tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice segir að fjöldi fíkniefnamála á hátíðinni sé í takt við það sem gerist á öðrum sambærilegum hátíðum.