Real Madrid tapaði á heimavelli Dagur Lárusson skrifar 20. október 2018 13:00 Úr leiknum. vísir/getty Vandræði Real Madrid héldu áfram í dag þegar liðið tapaði óvænt gegn Levante á heimavelli 2-0 en eftir leikinn er liðið í sjötta sæti deildarinnar. Lið Real Madrid hefur oft verið stjörnuprýddara heldur en byrjunarlið liðsins í dag en í framlínu liðsins í dag voru þeir Lucas Vazquez, Mariano Diaz og Marco Asensio. Liðsmenn Levante mættu ákveðnir til leiks og náðu forystunni strax á 7. mínútu og var það Jose Morales sem skoraði markið. Aðeins sex mínútum seinna fékk Levante dæmda vítaspyrnu. Á punktinn steig Roger Marti og skoraði hann framhjá Courtois í markinu og var staðan 0-2 í hálfleiknum. Gareth Bale var skipt inná í hálfeiknum til þess að reyna að blása nýju lífi í Real Madrid. Heimamenn náðu að minnka muninn á 72. mínútu með marki frá Marceloa en nær komust þeir ekki og frækinn sigur Levante því staðreynd. Spænski boltinn