Handbolti

Lovísa meiddist nokkrum klukkutímum fyrir brottför

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lovísa Thompson.
Lovísa Thompson. Vísir/Bára
Valskonan Lovísa Thompson fer ekki með íslenska kvennalandsliðinu í handbolta til Makedóníu þar sem liðið mun keppa í undankeppni HM.

Lovísa Thompson meiddist á æfingu landsliðsins í gærkvöldi og þurfti að draga sig úr hópnum. HSÍ segir frá þessu á heimasíðu sinni.

Þetta er þriðji leikmaðurinn sem íslenska liðið missir en áður höfðu Stjörnukonan Þórey Anna Ásgeirsdóttir og Selfyssingurinn Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir dottið út úr hópnum.

Íslenska liðið spilar einnig án fyrirliða síns Karenar Knútsdóttur sem meiddist í leik með Fram fyrr í vetur.

Með Íslandi í riðli í Makedóníu eru Makedónía, Tyrkland og Azerbaijan. Fyrsti leikurinn er á móti Tyrklandi á föstudaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×