

„Láttu okkur fá það óþvegið!“
Í bandarískri rannsókn var fylgst með 55 fjölskyldum borða á skyndibitastað.[1] 73% foreldra voru með eða notuðu símann og við það dró úr samskiptum við börnin, foreldrarnir voru lengur að bregðast við þeim og meira bar á árekstrum (foreldrar hækkuðu róminn, börnin hegðuðu sér illa). Önnur rannsókn skoðaði samskipti á milli foreldris og barns sem voru tekin upp á myndbönd og síðar greind.[2] Þar kom í ljós að símanotkun foreldra dró úr yrtum samskiptum um 20%, óyrtum um tæp 40% og hvatningu til barns um tæp 30%. Börnin sýndu meiri einhæfni, minni hugsun og takmarkaðri næmni í samskiptum.
Vakandi eftirtekt foreldris veitir börnum öryggi og er þeim jafn nauðsynleg og heimili. Áhugasamt andlit gefur barni staðfestingu á að það skipti máli og styrkir sjálfsmynd þess. Umhyggjusöm athygli dregur úr streitu og með gagnkvæmum samskiptum lærir barn að þekkja og skilja sjálft sig og aðra. Venjist barn því að foreldrar gefi því athygli jafn fúslega og morgunmat má búast við að það þrói með sér öryggiskennd sem gerir því kleift að gleyma sér í leik og síðar í námi og starfi.
Vitanlega eru foreldrar ekki alltaf stöðugt með augun á börnunum sínum, enda ekki ástæða til, en öll börn þarfnast vakandi athygli foreldra sinna á hverjum degi. Hellings af henni. Þegar venjan er að foreldri sé með annað eða bæði augun á símanum fær barn skilaboð um að það áhugaverða og mikilvæga gerist „annars staðar“. Með athyglina við skjáinn verður foreldrið annars hugar, finnst barnið vera truflandi og ýtir því frá sér, ef ekki með orðum þá með látbragði. Barn sem þarf að jafnaði að hafa fyrir því að ná athygli foreldra sinna verður meira krefjandi því það er upptekið við að halda þeim við efnið. Það má líka búast við að það verði eirðarlausara, háðara, eigi erfiðara með að sofna á kvöldin og vakni oftar á nóttunni. Það hlýtur því að vera tilraunarinnar virði fyrir foreldra að hvíla símann í morgunsárið og frá því að börnin koma heim úr leikskólanum þangað til þau eru sofnuð. Flest símtöl, póstar, skilaboð og fréttir þola nokkurra klukkutíma bið. Ef símalaus tími reynist of strembinn gæti verið forvitnilegt að spá í hvaða þörfum símanum er ætlað að svara, hversu vel honum tekst það og hvað það mögulega kostar.
[1] Radesky JS, et al. Patterns of mobile device use by caregivers of young children during fast food meals. Pediatrics 2014.
[2] Radesky JS, et al. Maternal mobile device use during eating encounters and mentalization. JDBP 2018.
Skoðun

Hagsmunir heildarinnar - Kafli eitt: Tómlæti Íslendinga
Hannes Örn Blandon skrifar

Þegar líða fer að jólum
Ísak Hilmarsson skrifar

Svansvottaðar íbúðir – fjárfesting í lífsgæðum
Bergþóra Góa Kvaran skrifar

Hættulegt tal Sjálfstæðisflokksins og Viðskiptaráðs
Guðni Freyr Öfjörð skrifar

Þetta má ekki gerast aftur! - Álag á útsvar
Sveinn Ægir Birgisson skrifar

Meistaragráða í lífsreynslu
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Stjórnvöld, Óskar á heima hér!
Þóra Andrésdóttir skrifar

Dvel þú í draumahöll
Hugrún Sigurjónsdóttir skrifar

Níðingsverk
Jón Daníelsson skrifar

Umhverfi, heilsa og skólamáltíðir
Stefán Jón Hafstein skrifar

Æji nei innflytjendur
Davíð Aron Routley skrifar

Stríðsglæpir sem munu ekki gleymast!
Hjálmtýr Heiðdal skrifar

Samstaða, kjarkur og þor
Björn Snæbjörnsson skrifar

Það er betra fyrir okkur öll að Háskóli Íslands efli fjarnám
Darri Rafn Hólmarsson skrifar

Yfirfull fangelsi, brostið kerfi
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

Þegar rafmagn hættir að vera sjálfsagður hlutur
Árni B. Möller skrifar

Það er flókið að eiga næstum 500 milljarða króna á Íslandi
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Lýðræði og framtíð RÚV: Tími til breytinga?
Erling Valur Ingason skrifar

5.maí Alþjóðadagur ljósmæðra
Unnur Berglind Friðriksdóttir skrifar

Endurnýjun hugarfarsins
Bjarni Karlsson skrifar

Ferðamenn: Vanmetnir skattgreiðendur í íslensku hagkerfi
Þórir Garðarsson skrifar

Góð vísa...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Við höfum ekki efni á tvískinnungi SFS
Vala Árnadóttir skrifar

Hvað getum við lært af Víetnamstríðinu?
Einar Magnússon skrifar

Góður rekstur Mosfellsbæjar og framtíðin björt
Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir ,Lovísa Jónsdóttir skrifar

Fristund.is fyrir öll - líka eldra fólk
Sara Björg Sigurðardóttir skrifar

Ríkisstjórn sem skeytir engu
Diljá Matthíasardóttir skrifar

Áskorun til ráðherra mennta- og barnamála og ráðherra menningarmála
Anna Klara Georgsdóttir skrifar

Fólkið sem gleymdist í Grindavík
Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar

Rússar pyntuðu og myrtu úkraínsku blaðakonuna Viktoriiu Roshchyna
Erlingur Erlingsson skrifar