Aukaspyrnumark Ceballos tryggði Real mikilvægan sigur gegn Betis Anton Ingi Leifsson skrifar 13. janúar 2019 21:45 Ceballos var hetja Real í kvöld. vísir/getty Það stóð tæpt er Real Madrid vann 2-1 sigur á Real Betis á útivelli er liðin mættust í nítjándu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld. Real komst yfir með marki Króatans, Luka Modric, á þrettándu mínútu og allt leit vel út fyrir Real í hálfleik sem hefur gengið brösuglega á tímabilinu. Sergio Canales jafnaði metin á 67. mínútu en það var fyrrum Betis-maðurinn, Dani Ceballos, sem skoraði sigurmarkið tveimur mínútum fyrir leikslok með marki beint úr aukaspyrnu. MIkilvæg þrjú stig til Real Madrid. Real er eftir sigurinn í fjórða sætin með 33 stig en þeir eru tíu stigum á eftir toppliði Barcelona. Real Betis er í sjöunda sætinu með 26 stig.FT Real Betis 1-2 Real MadridA stressful night for Santiago Solari ends with the three points, thanks to local boy Dani Ceballos' superb free-kick. https://t.co/r0WsR7tbBr pic.twitter.com/q6kRm7PLf1— BBC Sport (@BBCSport) January 13, 2019 Spænski boltinn