Áttundi deildarsigur Börsunga í röð 27. janúar 2019 17:00 Alba og Messi fagna í kvöld. vísir/getty Barcelona vann sinn áttunda leikinn spænsku úrvalsdeildinni í röð er liðið vann 2-0 útisigur á Girona í dag. Fyrsta markið kom strax á níundu mínútu er bakvörðurinn Nelson Semedo skoraði og þannig stóðu leikar í hálfleik. Bernardo Espinosa, fyrrum leikmaður Barcelona og varnarmaður Girona, fékk sitt annað gula spjald á 51. mínútu og varð því sendur í sturtu. Ekki skánaði ástandið fyrir Girona. Annað markið kom ekki úr óvæntri átt en það skoraði argentínski snillingurinn, Lionel Messi, eftir undirbúning bakvarðarins Jordi Alba. Börsungar eru því áfram á toppi deildarinnar. Þeir eru með 49 stig, fimm stigum meira en Atletico Madrid, sem er í öðru sætinu. Girona er um miðja deild.Lionel Messi has now been directly involved in at least one goal in his last fourteen consecutive LaLiga games: 15 goals 8 assistsSeriously hot form. pic.twitter.com/32kdG9zdLr— Squawka Football (@Squawka) January 27, 2019 Spænski boltinn