Skoðun

Gerum betur

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
Loftgæði í Reykjavík mælast nú með versta móti líkt og stundum er á þessum árstíma þegar veður er kalt og loft stillt. Loftgæði við að minnsta kosti tvær mælistöðvar í borginni mælast „mjög slæm“.

Nægilegt er að líta út um gluggann í miðborginni, eða taka stuttan göngutúr til að verða áþreifanlega var við svifryk og mengun í lofti. Á sumum stöðum er engu líkara en maður sé staddur í olíuríki við Persaflóa í miðjum sandstormi. Sandur og svifryk fyllir vit og lungu.

Hvernig ástandið getur verið með þessum hætti í lítilli borg í norðri er hreinlega ómögulegt að skilja. Loftmengun í Reykjavík er meiri en tíðkast í margfalt stærri iðnaðarborgum.

Auðvitað er það svo að bílaumferð á langmestan þátt í því að skapa vandamálið. Í þeim efnum þarf fólk auðvitað að líta sér næst. Sú staðreynd að fólki með öndunarsjúkdóma og leikskólabörnum er reglulega ráðlagt að halda sig innandyra er vitnisburður um bjagaða forgangsröðun.

Hitt er svo annað mál að borgaryfirvöld verða að sjá til þess að borgin sé sæmilega hrein. Á því er mikil vöntun. Varla er ofsagt að borgin sé drulluskítug. Ryk, sandur og fjúkandi rusl á götum, umferðareyjum og göngustígum.

Götuhreinsanir fara fram einu sinni á ári, sem er hlægilegt í samanburði við þær borgir sem við miðum okkur við á tyllidögum. Víða eru götur hreinsaðar daglega eða vikulega. Ferðamannaborgin Reykjavík kemur skelfilega út úr öllum samanburði.

Borgarstjóri taldi það fráleitt að borgin gæti liðkað fyrir yfirstandandi kjaraviðræðum með því að lækka útsvar og önnur gjöld á vegum borgarinnar. Það væri auðvitað ekki hægt án þess að skerða grunnþjónustuna.

En þegar svona viðrar, og tíðindi berast af lokun grunnskóla í borginni að því er virðist vegna vanrækslu við reglubundið og eðlilegt viðhald, er eðlilegt að spyrja í hvað peningarnir séu eiginlega að fara? Að minnsta kosti ekki grunnþjónustuna að því er virðist.

Það ætti að vera forgangsmál hjá borgaryfirvöldum og íbúum að ráða niðurlögum mengunar í borginni. Reykvíkingar sjálfir þurfa að horfast í augu við það að bílar eiga ekki að vera í forgangi gagnvart heilsu fólks og lífsgæðum, og þurfa að vera reiðubúnir að sýna sveigjanleika þegar kemur að ferðavenjum.

Borgaryfirvöld þurfa svo að sjá til þess að borgin sé að minnsta kosti sæmilega hrein.

Bæði yfirvöld og borgarbúar geta gert svo miklu, miklu betur.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×