Það þarf að bjarga skordýrum heimsins svo bjarga megi mannkyninu. Þetta segir Anne Sverdrup-Thygeson, einn fremsti skordýrafræðingur heims og prófessor við Norska lífvísindaháskólann.
Sverdrup-Thygeson segir skordýr vera límið í náttúrunni og enginn vafi leiki á því að bæði fjöldi þeirra og fjölbreytileiki fara minnkandi. Hún segir það aðeins tímaspursmál hvenær afleiðingarnar komi í ljós verði ekkert að gert enda leiki skordýr lykilhlutverk í flóknu vistkerfi Jarðarinnar sem viðheldur öllu lífi á plánetunni.
Í gær kom út ný skýrsla á vegum Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika og þjónustu vistkerfa. Skýrslan er sláandi en þar kemur meðal annars fram að allt að milljón tegundir lífvera séu í útrýmingarhættu á næstu áratugum vegna ágangs mannsins á náttúruna.
Þá er aldauði lífvera margfalt meiri nú en meðaltal síðustu tíu milljón ára og er ein af hverjum fjórum tegundum í hættu.
Skordýr eru stoðirnar undir matnum og vatninu sem mannkynið reiðir sig á. Sverdrup-Thygeson segir að fyrsta skrefið í því að bjarga þessum litlu lífverum sé að fá fólk til þess að meta þær að verðleikum.
Tölfræðin sýnir að á meðan mennirnir eru helmingi fleiri en þeir voru fyrir 40 árum þá hefur fjölda skordýra fækkað um helming á sama tíma. Sverdrup-Thygeson segir þetta dramatíska breytingu.
„Það eru enn mörg smáatriði sem þarf að skoða en ég hef lesið nánast allar rannsóknir um þetta sem til eru á ensku og ég hef ekki enn rekist á neina þar sem helstu skilaboð skordýrafræðinga eru hnignun margra skordýrategunda,“ segir Sverdrup-Thygeson.
Hún segir eyðileggingu náttúrulegs umhverfis til þess að rækta land meginástæðu þessarar þróunar.
„Þegar þú setur síðan öll eiturefnin og loftslagsbreytingar í jöfnuna þá getum við sagt að það sé ekki mjög gott að vera skordýr í dag. Ég get vel skilið það að fólk hafi ekki áhuga á að bjarga skordýrum skordýranna vegna en maðurinn þarf að átta sig á því að þetta mun hafa áhrif á hann. Við þurfum að bjarga skordýrum, og ef það er ekki þeirra vegna, þá vegna okkar sjálfra. Það verður einfaldlega mun erfiðara en það er í dag að fá nægan mat og ferskvatn til að fæða allt mannkyn ef skordýranna nýtur ekki við. Það ætti að vera mikil hvatning til þess að gera eitthvað á meðan við höfum enn tíma til þess,“ segir Sverdrup-Thygeson.
