Lækka viðbúnaðarstig vegna hættu á berghlaupi Kjartan Kjartansson skrifar 2. júlí 2019 12:34 Frá fjallinu Mannen í Raumsdal í Noregi. Tore Bergeng/NVE
Norsk yfirvöld hafa lækkað viðbúnaðarstig sem lýst var yfir vegna hættu á berghlaupi úr fjallinu Mannen á vesturströnd landsins. Íbúum í nágrenni fjallsins sem var skipað að yfirgefa heimili sín hefur jafnframt verið leyft að snúa heim. Veruleg gliðnun hefur átt sér stað í Mannen í Raumsdal undanfarið. Rauðu viðbúnaðarstigi var lýst yfir eftir að nokkrar skriður féllu úr hluta þess á aðfaranótt mánudags en þá gerði mikla úrkomu. Norska ríkisútvarpið NRK segir að síðan þá hafi kólnað í veðri og snjór fallið á fjallið. Það hafi dregið úr hættunni á berghlaupi. Guðrún Dreiås Majala, jarðfræðingur hjá Vatna- og orkumálastofnun Noregs, segir að áfram verði fylgst grannt með fjallinu. Ólíklegt sé að þetta verði í síðasta skipti sem hættuástandi sé lýst yfir við fjallið og rýma þurfi byggð á þessu ári.
Noregur Tengdar fréttir Rýma byggð vegna ótta við berghlaup í Noregi Hluti fjallsins Mannen á vesturströnd Noregs hefur gliðnað hratt undanfarið og mikilli úrkomu er spáð áfram í dag. 1. júlí 2019 10:35 Mest lesið Samfélagið í Árbæ harmi slegið vegna andláts Maciej Innlent Vita ekki hvenær þau komast heim með líkamsleifar drengsins síns Innlent Tuga kílómetra slóð á hafsbotni hjá skemmda sæstrengnum Erlent Farþegar heyrðu mikinn hvell við flugtak og vélinni nauðlent Erlent Ákall eftir réttmætari dreifingu á arði Innlent María Kristjánsdóttir er látin Innlent Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2024 Innlent Snjóþekja og skafrenningur gætu sett strik í reikninginn Innlent Öflugasta eftirlit í áratugi veltur á fjármögnun stjórnvalda Innlent „Mjög margir sem gleyma því og eru þá eins og beljur á svelli“ Innlent Fleiri fréttir Trump kemur Johnson til bjargar Vöruðu við fuglum rétt fyrir slysið Skiptast á 300 föngum Fimm ákærðir í tengslum við andlát Liam Payne Farþegar heyrðu mikinn hvell við flugtak og vélinni nauðlent Tuga kílómetra slóð á hafsbotni hjá skemmda sæstrengnum Þetta orsakaði kuldabola sem herjaði á íbúa Nuuk Rannsaka flugflotann í kjölfar slyssins Uppskerubrestur og þungar horfur vegna veðurofsans Jimmy Carter látinn Sjö daga þjóðarsorg lýst yfir í Suður-Kóreu Urðu úti við leit að Stórfæti Smábarn einu skrefi frá því að falla fram af bjargi hjá eldgosi Olivia Hussey er látin Neyðarástand í Nuuk vegna straumleysis Fjöldi látinn eftir flugslys í Suður-Kóreu Forstjóri sjúkrahúss meðal 240 handtekinna Minnst fimmtán áfrýja í máli Pelicot Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Íslandsvinurinn OG Maco látinn Tveir látnir eftir skotbardaga í Noregi „Svarta ekkjan“ fannst látin Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Barn meðal látinna í rútuslysi Þýska sambandsþingið leyst upp Fyrrverandi forsætisráðherra Indlands látinn Ákæra líka starfandi forseta til embættismissis Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Sjá meira
Rýma byggð vegna ótta við berghlaup í Noregi Hluti fjallsins Mannen á vesturströnd Noregs hefur gliðnað hratt undanfarið og mikilli úrkomu er spáð áfram í dag. 1. júlí 2019 10:35