Segir Bandaríkjastjórn hafa boðið afnám þvingana Kjartan Kjartansson skrifar 27. september 2019 13:12 Rouhani sagðist í vikunni opinn fyrir öllum viðræðum við Bandaríkjastjórn en ekki fyrr en refsiaðgerðum yrði aflétt. AP/Pavel Golovkin
Hassan Rouhani, forseti Írans, fullyrðir að Bandaríkjastjórn hafi boðist til að aflétta öllum refsiaðgerðum gegn landinu í skiptum fyrir viðræður. Honum sé þó ekki ljóst hvaða árangur gæti náðst með slíkum viðræðum. Ummælin lét Rouhani falla eftir að hann sneri heim til Írans frá allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem fór fram í New York í vikunni. Reuters-fréttastofan hefur eftir Rouhani að Angela Merkel, kanslari Þýskalands, Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands og Emmanuel Macron, forseti Frakklands, hafi hvatt hann til að funda með Bandaríkjamönnum. Fulltrúar Bandaríkjanna hafi sagt „skýrt“ að þeir myndu aflétta öllum refsiaðgerðum gegn Íran. Rouhani sagði að í ljósi refsiaðgerðanna sem eru í gildi og „eitraðs andrúmslofts“ þar sem Bandaríkjastjórn beiti Íran hámarksþrýstingi „getur enginn spáð fyrir um hvernig þessum viðræðum lyki og þær leiddu af sér“. Í New York útilokaði Rouhani að ræða við Bandaríkjastjórn nema viðskiptaþvingunum yrði aflétt fyrst. Donald Trump Bandaríkjaforseti dró Bandaríkin út úr kjarnorkusamningi heimsveldanna við Íran sem átti að takmarka kjarnorkuáætlun landsins í fyrra. Í kjölfarið lagði ríkisstjórn hans aftur á refsiaðgerðir sem hafði verið aflétt með samkomulaginu. Síðan þá hefur vaxandi spenna færst í samskipti Bandaríkjanna og Írans.
Bandaríkin Íran Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira