Allir um borð í úkraínskri farþegaþotu fórust Atli Ísleifsson og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 8. janúar 2020 06:36 Frá vettvangi slyssins í Teheran. Vísir/AP
Allir um borð fórust þegar úkraínsk farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 hrapaði rétt eftir flugtak frá flugvellinum í Teheran í Íran í nótt. 176 voru um borð í vélinni og segir talsmaður Rauða hálfmánans í Íran að engar líkur séu á því að nokkur hafi lifað slysið af. Vélin var í eigu Ukraine International Airlines og á leið til Kænugarðs í Úkraínu. Talsmaður samgönguyfirvalda í Íran segir að eldur hafi komið upp í hreyfli vélarinnar rétt eftir flugtak. Flugstjórinn missti við það stjórnina á vélinni og hrapaði hún til jarðar. Talsmenn flugfélagsins hafa enn ekki tjáð sig um atvikið en ólíklegt þykir að slysið tengist með nokkrum hætti væringum Írana og Bandaríkjamanna. Íranskir fjölmiðlar segja tæknileg vandræði hafa valdið slysinu. Volodomyr Zelensky forseti Úkraínu hefur þegar vottað ættingjum hinna látnu samúð sína en þeir eru sagðir hafa verið frá nokkrum þjóðlöndum. Vélin átti að taka á loft klukkan 5:15 að staðartíma, eða skömmu fyrir klukkan tvö að íslenskum tíma. Brottför hafi þó verið seinkað eitthvað. Rannsóknarnefnd á vegum íranskra yfirvalda er á leiðinni á slysstaðinn. Alls voru 167 farþegar um borð í vélinni og níu í áhöfn. Íranski fjölmiðillinn IRNA segir frá því að 147 Íranir hafi látið lífið í slysinu og 32 erlendir ríkisborgarar. We are following reports that a Ukrainian 737-800 has crashed shortly after takeoff from Tehran. #PS752 departed Tehran at 02:42UTC. Last ADS-B data received at 02:44UTC. https://t.co/qXWHUPGDTu pic.twitter.com/vuAi6TOqTp— Flightradar24 (@flightradar24) January 8, 2020 Vísir/AP
Fréttir af flugi Íran Úkraína Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira