Minjastofnun Íslands harmar fregnir gærdagsins þess efnis að Bíó Paradís við Hverfisgötu 54 verði lokað 30. apríl þegar húsaleigusamningur rennur út. Öllu starfsfólki hefur verið sagt upp. Framkvæmdastjóri Bíós Paradísar segir reksturinn ekki geta gengið miðað við þá húsaleigu sem í boði sé. Bíóinu var komið á koppinn árið 2010 en þar var um árabil kvikmyndahúsið Regnboginn.
„Minjastofnun Íslands harmar nýjustu fregnir er varða framtíð kvikmyndahússins að Hverfisgötu 54 þar sem Bíó Paradís hefur verið starfrækt síðasta áratuginn. Bíórekstur hefur verið í húsinu frá upphafi en kvikmyndahúsið Regnboginn var opnað sama ár og húsið var fullbyggt árið 1977,“ segir í erindi Minjastofnunar.
Búið nýjustu tækni á sínum tíma
„Bíóið var búið nýjustu tækni í sýningarbúnaði á þeim tíma og var fyrsta kvikmyndahúsið hér á landi sem frá upphafi var sérhannað sem fjölsalabíó. Bíó Paradís er seinasta kvikmyndahúsið sem enn er starfandi í miðbæ Reykjavíkur.
Húsnæðið er hið eina í miðbænum sem hentar til slíks reksturs auk þess sem þar er sérhæfður búnaður til sýninga á ólíkum formum kvikmynda. Á síðustu árum hefur Bíó Paradís fest sig í sessi sem helsti griðastaður kvikmyndalistar í landinu og mikilvæg miðstöð menningar og mannlífs í þessum hluta miðbæjarins.“
Rætt var við Hrönn Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra Bíó Paradís, í kvöldfréttum í gær.
Vísað er til þess að Borgarsögusafn Reykjavíkur hafi árið 2019 unnið varðveislumat fyrir kvikmyndahúsið að Hverfisgötu 54. Helstu niðurstöður matsins séu að húsið hafi miðlungs til hátt varðveislugildi sem felist einkum í menningarsögulegu gildi þess og þeirrar starfsemi sem það hýsir.
„Í því vegur þyngst að enn er óslitið það samhengi sem er milli upphaflegrar og sérhæfðrar hönnunar hússins sem fjölsala kvikmyndahúss, hins fyrsta sinnar tegundar hér á landi, og þeirrar starfsemi sem það hýsir og hefur hýst frá upphafi. Jafnframt er þar eina starfandi kvikmyndahúsið sem eftir er í miðbæ Reykjavíkur og þar með er það lifandi vitnisburður um þann þátt í sögu dægurmenningar og afþreyingar í Reykjavík. Starfsemi kvikmyndahússins á jarðhæð leggur mikið til götulífs og staðaranda við Hverfisgötu.“
Ómissandi fyrir mannlíf og menningu
Starfsmenn Minjastofnunar Íslands hafi kynnt sér sögu og ástand kvikmyndahússins á seinasta ári ásamt fulltrúum frá Borgarsögusafni og skrifstofu menningarmála hjá Reykjavíkurborg. Niðurstaða þeirra hafi verið að taka heilshugar undir það mat á varðveislugildi bíósins sem fram komi í umsögn Borgarsögusafns.
„Minjastofnun hvetur Reykjavíkurborg eindregið til þess að setja nauðsynleg ákvæði í skipulagi miðbæjarins eða gera aðrar þær ráðstafanir sem tryggt geta áframhaldandi bíórekstur í húsinu sem ómissandi er fyrir mannlíf og menningu í miðbænum.“