Reiður og var að reyna að skaða sig Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 9. febrúar 2020 14:30 Í þáttunum Trans börn er fjórum íslenskum fjölskyldum fylgt eftir yfir tveggja ára tímabil. Mynd/Stöð2 „
Ég hef alltaf þekkt sjálfa mig sem stelpu, mér finnst að ég hafi aldrei verið strákur einhvern veginn. Það er erfitt að útskýra það, en mér hefur alltaf liðið eins og stelpa,“ segir Gabríella María, eitt barnanna sem kemur fram í heimildarþáttunum Trans börn á Stöð 2. Í kvöld verður sýndur fyrsti þátturinn í þessari vönduðu þáttaröð og verður hann í opinni dagskrá á Stöð, strax á eftir fréttum. Aðeins fyrsti þátturinn af þremur er í opinni dagskrá, en stjórnendum Stöðvar 2 fannst að þessi þáttur ætti einfaldlega erindi við sem flesta. Í fyrsta þætti segja Alex Grétar og Gabríela María sögu sína og rætt er við fjölskyldur þeirra. Í þáttunum er fjórum íslenskum fjölskyldum fylgt eftir yfir tveggja ára tímabil. Allar fjölskyldurnar eiga það sameiginlegt að innan þeirra er barn sem upplifir sig í öðru kyni en því sem þeim var úthlutað við fæðingu. Sigrún Ósk Kristjánsdóttir umsjónarkona þáttanna sagði í samtali við Vísi í vikunni að fjölskyldurnar opni sig upp á gátt í þáttunum og deili bæði því góða og því slæma.Sjá einnig: Gefur innsýn í líf fjögurra íslenskra trans barna Klippa: Reiður og var að reyna að skaða sjálfan sig Trans teymið lagt niður Fram kemur í fyrsta þættinum að börnin sem rætt er við hafa fengið aðstoð hjá sérstöku teymi sem stofnað var utan um trans börn á BUGL, barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Eins og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum síðustu daga var foreldrum trans barna tilkynnt í janúar að það væri búið að leggja teymið niður og þjónustan nú aðeins í boði á göngudeild. Guðrún B. Guðmundsdóttir, yfirlæknir BUGL, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að mannskap og fjármagn vanti til að halda uppi transteyminu. „Hann var bara reiður og var að reyna að skaða sjálfan sig,“ segir móðir Alex Grétars í þætti kvöldsins en sonur hennar var eitt barnanna sem fékk mikla hjálp frá BUGL teyminu. Björn Hjálmarsson barna- og unglingageðlæknir á BUGL segir í þættinum Trans börn að reiknað var með tveimur til þremur tilvísunum á ári til teymisins, en fjöldinn hefur fimmfaldast síðustu ár og núna á síðasta ári voru tilvísanirnar 26. Foreldrar transbarna telja þetta lífshættulega ákvörðun og benda á að í lögum um kynrænt sjálfræði sé kveðið á um þverfaglegt transteymi. Í mun meiri hættu en önnur börn Transteymið gerir börnunum til dæmis kleift að komast á lyf vegna hormónastarfsemi, veitir sálfræðimeðferð og heldur utan um langt og strangt ferlið sem börnin ganga í gegnum. Margir foreldrar trans barna hafa reynslu af því að sitja yfir börnum sínum vegna þunglyndis og sjálfsvígshættu og þjónusta trans teymisins því mikilvæg. „Trans krakkar eru í mun meiri hættu en önnur ungmenni á að upplifa mikla vanlíðan. Það er miklu líklegra að trans barn skaði sig eða sé með sjálfsvígshugsanir,“ segir Sigríður Birna Valsdóttir í þætti kvöldsins en hún er ráðgjafi hjá Samtökunum 78. Hún segir að trans börn verði oft kvíðnari eftir viðtöl í heilbrigðiskerfinu vegna þekkingarleysis heilbrigðisstarfsfólks. Það verði að setja peninga í málaflokkinn svo hægt sé að reka sérstakt transteymi á BUGL.Trans börn er í opinni dagskrá á Stöð 2 klukkan 19.10 í kvöld. Framleiðandi þáttanna er Sveinn Benedikt Rögnvaldsson, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sér um umsjón og klippingu annast Fannar Scheving Edwardsson. Friðrik Friðriksson sá um myndatöku.
Bíó og sjónvarp Börn og uppeldi Heilbrigðismál Trans börn Tengdar fréttir Vantar mannskap til að halda uppi transteymi Transteymi BUGL hefur verið lagt niður vegna manneklu en samkvæmt lögum skal þverfaglegt teymi sinna börnunum. Hvorki fjármagn né starfsfólk fylgdi lagasetningunni. Móðir transdrengs segir heilbrigðisyfirvöld þurfa að hysja upp um sig. 7. febrúar 2020 19:29 Foreldrar transbarna í öngum sínum Transteymi BUGL hefur verið lagt niður og þjónustan verður nú í boði á göngudeild. Mæður transbarna segja þetta lífshættulega ákvörðun og benda á að í lögum um kynrænt sjálfræði sé kveðið á um þverfaglegt transteymi. 7. febrúar 2020 15:30 Gefur innsýn í líf fjögurra íslenskra trans barna Sigrún Ósk Kristjánsdóttir segir að allir geti lært eitthvað af þáttunum Trans börn sem hefja göngu sýna á Stöð 2 á sunnudag. 5. febrúar 2020 18:06 Þekkingarleysi í heilbrigðiskerfinu kemur niður á trans börnum Ráðgjafi hjá Samtökunum 78 segir að trans börn verði oft kvíðnari eftir viðtöl í heilbrigðiskerfinu vegna þekkingarleysis heilbrigðisstarfsfólks. Það verði að setja peninga í málaflokkinn svo hægt sé að reka sérstakt transteymi á BUGL. Þjónustan sé gríðarlega mikilvæg fyrir börnin. 8. febrúar 2020 20:30 Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Ný hugsun í heimi brúnkuvara Lífið samstarf „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið Fleiri fréttir María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Sjá meira
Vantar mannskap til að halda uppi transteymi Transteymi BUGL hefur verið lagt niður vegna manneklu en samkvæmt lögum skal þverfaglegt teymi sinna börnunum. Hvorki fjármagn né starfsfólk fylgdi lagasetningunni. Móðir transdrengs segir heilbrigðisyfirvöld þurfa að hysja upp um sig. 7. febrúar 2020 19:29
Foreldrar transbarna í öngum sínum Transteymi BUGL hefur verið lagt niður og þjónustan verður nú í boði á göngudeild. Mæður transbarna segja þetta lífshættulega ákvörðun og benda á að í lögum um kynrænt sjálfræði sé kveðið á um þverfaglegt transteymi. 7. febrúar 2020 15:30
Gefur innsýn í líf fjögurra íslenskra trans barna Sigrún Ósk Kristjánsdóttir segir að allir geti lært eitthvað af þáttunum Trans börn sem hefja göngu sýna á Stöð 2 á sunnudag. 5. febrúar 2020 18:06
Þekkingarleysi í heilbrigðiskerfinu kemur niður á trans börnum Ráðgjafi hjá Samtökunum 78 segir að trans börn verði oft kvíðnari eftir viðtöl í heilbrigðiskerfinu vegna þekkingarleysis heilbrigðisstarfsfólks. Það verði að setja peninga í málaflokkinn svo hægt sé að reka sérstakt transteymi á BUGL. Þjónustan sé gríðarlega mikilvæg fyrir börnin. 8. febrúar 2020 20:30