Viðvörunin orðin appelsínugul fyrir Suðausturland Kjartan Kjartansson skrifar 18. febrúar 2020 18:02 Verst verður veðrið undir Öræfajökli á morgun. Vísir/Vilhelm
Veðurstofan varar nú við norðaustan stórhríð á Suðausturlandi annað kvöld og hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun í stað gulrar. Gul viðvörun vegna veðurs tekur gildi fyrir allt landið utan suðvesturhornsins um miðjan dag á morgun og á að vera fram á fimmtudagskvöld. Kröpp og dýpkandi lægð stefnir nú á landið og á að hvessa hressilega úr austri og síðan norðaustri á morgun. Upphaflega voru gefnar út gular veðurviðvaranir um mest allt landið en viðvörunin fyrir Suðausturland hefur nú verið uppfærð í appelsínugula á milli klukkan 17:00 og 22:00 á morgun. Á Suðausturlandi er nú spáð norðaustan 18-28 metrum á sekúndu með talsverðri snjókomu eða slyddu, hvössustu í Mýrdal og við Öræfajökul þar sem vindhviður geta farið yfir 35 metra á sekúndu. Varað er við að ekkert ferðaveður verði á þeim slóðum. Gul viðvörun tekur gildi klukkan 14:00 á morgun og gildir fram á fimmtudagsmorgun. Viðvaranir í öðrum landshlutum taka gildi um miðjan dag eða snemmkveldis á morgun. Sums staðar, eins og á Vestfjörðum gilda þær fram á fimmtudagskvöld. Alls staðar er spáð hvassviðri eða stormi með snjókomu eða hríðaveðri.
Veður Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira