Watford varð fyrsta liðið til að leggja Liverpool af velli í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð en liðið kjöldró gesti sína úr Bítlaborginni á Vicarage Road í kvöld. Lokatölur 3-0 Watford í vil. Er þetta annað tap Liverpool í síðustu þremur leikjum en liðið tapaði 1-0 á útivelli gegn Atletico Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar fyrir 11 dögum síðan.
Liverpool sem var farið að ógna meti Arsenal með því að fara heilt tímabil, sem og 49 leiki samtals, án þess að tapa leik var hvorki fugl né fiskur í kvöld. Ríkjandi Evrópu- og verðandi Englandsmeistarar söknuðu fyrirliða síns Jordan Henderson gífurlega en liðið var einfaldlega aldrei líklegt til afreka í leiknum.
Liverpool nowhere near the level collectively here tonight but the absence of both Henderson and Gomez being keenly felt. Both been so key to this run of 18 straight PL wins.
— James Pearce (@JamesPearceLFC) February 29, 2020
Eftir markalausan fyrri hálfleik þá steig Ismaïla Sarr upp fyrir heimamenn en hann skoraði tvívegis með stuttu millibili. Fyrra mark hans kom eftir langt innkast þar sem boltinn skoppaði í teignum áður en Abdoulaye Doucoure lagði hann fyrir markið þar sem Sarr skoraði af öryggi.
Það síðara, sex mínútum síðar, var einkar laglegt en hann vippaði knettinum þá snyrtilega framhjá Alisson í marki Liverpool eftir sendingu fyrirliðans Troy Deeney inn fyrir vörn Liverpool. Það var svo Deeney sjálfur sem gulltryggði sigurinn á 72. mínútu leiksins og lokatölur 3-0 fyrir Watford í einhverjum ótrúlegasta leik tímabilsins.
Ismaila Sarr is the first player to score a brace against Liverpool in the Premier League this season.
— Squawka Football (@Squawka) February 29, 2020
An evening he will never forget. pic.twitter.com/V0LyoKl9B0
Þó Liverpool hafi átt skot í stöng í stöðunni 2-0 þá var liðið í raun aldrei líklegt til að skora í dag og sigur Watford meira en sanngjarn.
Með sigrinum komst Watford upp í 27 stig, jafn mikið og West Ham United og Bournemouth. Watford situr í 17. sæti með markatöluna -16, þar fyrir ofan eru West Ham með -14 en Bournemouth situr í því 18. sem er fallsæti með -17 í markatölu.