Kórónuveirusmit staðfest í Noregi Vésteinn Örn Pétursson skrifar 26. febrúar 2020 21:05 Geir Bukholm og Line Vold, bæði hjá Lýðheilsustofnun Noregs, á blaðamannafundinum þar sem tilkynnt var um smitið. Vísir/AP
Fyrsta tilfelli kórónuveirunnar sem valdið getur Covid-19 sjúkdómnum hefur verið staðfest í Tromsø í Noregi. Þetta var staðfest á blaðamannafundi Lýðheilsustofnunar Noregs í dag. Fjallað er um málið á vef norska ríkisútvarpsins. Þar kemur fram að um sé að ræða konu sem hafi verið stödd í Kína síðustu helgi. Hún hafi síðan verið prófuð og niðurstöður sýnatöku staðfestu að hún væri smituð af kórónuveirunni. Haft er eftir Kathrine Kristoffersen ráðgjafa að Tromsø hafi komið sér upp aðgerðaáætlun vegna veirunnar og að síðustu dagi hafi farið fram undirbúningur undir mögulegt smit. „Smitið uppgötvaðist við reglubundið eftirlit, þar sem prófanir eru framkvæmdar á öllum þeim sem koma frá svæðum í [Kína] þar sem margir hafa smitast,“ segir Kristoffersen. Þó segir hún að lítil hætta sé á að konan smiti aðra, þar sem hún sé nú í sóttkví á heimili sínu. Læknir hefur daglega samband við konuna í síma til þess að fylgjast með stöðu mála. Smithætta í Noregi eykst Line Vold, deildarstjóri við Lýðheilsustofnun Noregs, segir líkurnar á því að smitast af kórónuveirunni í Noregi aukast samhliða því sem veiran greinist í æ fleiri löndum. Í gær höfðu verið tekin sýni af alls 100 Norðmönnum án þess að smit hefði verið staðfest. Þó bárust fregnir af því fyrr í dag að norskur háskólanemi á Ítalíu hefði verið lagður inn á spítala með veiruna.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Noregur Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira