Innlent

Ekki skynsamlegt að beita mishörðum aðgerðum eftir landsvæðum að mati Þórólfs

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Þórólfur Guðnason framkvæmdi óformlega skoðanakönnun á meðal umdæmislækna sóttvarna og lögreglustjóra landsins um ágæti þess að beita mishörðum sóttvarnaraðgerðum eftir landsvæðum.
Þórólfur Guðnason framkvæmdi óformlega skoðanakönnun á meðal umdæmislækna sóttvarna og lögreglustjóra landsins um ágæti þess að beita mishörðum sóttvarnaraðgerðum eftir landsvæðum. Vísir/Vilhelm

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir telur ekki skynsamlegt að beita mismunandi sóttvarnaraðgerðum á mismunandi landsvæðum á þessu stigi kórónuveirufaraldursins.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í minnisblaði hans til heilbrigðisráðherra sem er grundvöllur nýrra sóttvarnaraðgerða sem kynntar voru rétt fyrir hádegi í dag, en lesa má um helstu atriði þeirra hér. Þær munu gilda til 12. janúar á nýju ári.

Í minnisblaðinu nefnir Þórólfur að flest smit hafi að undanförnu greinst á höfuðborgarsvæðinu. Því hafi komið upp hugmyndir um að beita mishörðum sóttvarnaraðgerðum á mismunandi svæðum.

Samkvæmt tölum á Covid.is eru aðeins tveir í einangrun á svæði sem nær frá Hrútafirði í vestri að Djúpavogi í austri, báðir á Akureyri. 149 eru hins vegar í einangrun á höfuðborgarsvæðinu.

Einangrun og sóttkví eftir landshlutum.Covid.is

Í minnisblaðinu kemur fram að Þórólfur hafi framkvæmt óformlega skoðanakönnun á meðal umdæmislækna sóttvarna á landsbyggðinni og lögreglustjóra landsins um ágæti þess að beita mishörðum sóttvarnaraðgerðum eftir landsvæðum.

Það hafi hins vegar komið í ljós í henni að mjög skiptar skoðanir hafi verið á slíkri tilhögun.

„Á þessum tímapunkti þegar faraldurinn er í lágmarki alls staðar á landinu þá tel ég því ekki skynsamlegt að beita mismunandi sóttvarnaaðgerðum á mismunandi svæðum,“ skrifar Þórólfur

Nefnir Þórólfur einnig að nýjustu útreikningar á smitstuðli bendi til þess að hann sé um 1,5 sem þýði að staðan sé viðkvæm, lítið þurfi til að hleypa faraldrinum aftur í uppsveiflu.

Þórólfur ræddi stuttlega um þessa óformlegu könnun í Reykjavík síðdegis í gær. Umræða um það hefst þegar um 8.30 mínútur eru liðnar af viðtalinu hér að neðan.


Tengdar fréttir

Margir ef­laust að vonast eftir 20 manna fjölda­mörkum

Heilbrigðisráðherra segir að margir hefðu eflaust viljað að fjöldamörk samkomubanns yrðu hækkuð í tuttugu manns með nýjum sóttvarnareglum sem taka gildi á fimmtudag. Faraldurinn sé hins vegar á viðkvæmum stað og stíga þurfi varfærin skref.

Vara við fölsuðum bólu­efnum

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur varað við efni sem auglýst eru á netinu sem bóluefni. Skipulagðir brotahópar hafi margir nýtt tækifærið í kjölfar jákvæðra frétta af þróun bóluefna.

Áfram tíu manna samkomubann en sundlaugar opnaðar

Samkomubann mun áfram miðast við tíu manns til 12. janúar með nýjum sóttvarnareglum sem taka gildi á fimmtudag. Allar verslanir munu þó geta tekið við fimm manns á hverja tíu fermetra, mest hundrað manns, og þá verða sundlaugar opnaðar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×