Manchester City fjárfestir í táningi frá Perú Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. apríl 2020 07:16 Nýjasti leikmaður Manchester City er 16 ára táningur frá Perú. Vísir/Alianza Lima
Manchester City hefur fest kaup á Kluiverth Aguilar, 16 ára gömlum bakverði frá Alianza Lima í Perú. Aguilar, sem stefnir á að vera næsti Dani Alves, mun þó ekki flytja til Englands fyrr en hann verður 18 ára, í maí árið 2021. Svipa kaupin til kaupa Manchester United á tvíburunum Fabio og Rafel fyrir þó nokkrum árum en félagið keypti þá þegar þeir voru 15 ára gamlir. Þeir gengu þó ekki til liðs við félagið fyrr en þeir voru orðnir 18 ára gamlir. „Að fara til City er stórt skref upp á við. Ég er mjög ánægður með því að vera ganga til liðs við félagið,“ sagði Aguilar eftir undirskriftina. Alianza mun fá hlutfall af næstu sölu Aguilar fari svo að Manchester City selji hann áfram. Í yfirlýsingu frá Man City segir þó að líkt og með alla aðra ungra leikmenn sem félagið kaupir þá reikni það með því að Aguilar geti spilað á hæsta stigi knattspyrnunnar þegar fram líða stundir. Aguilar leikur venjulega í stöðu hægri bakvarðar og er fastamaður í U17 ára landsliði Perú. Þá hefur hann einnig leikið með U23 ára liði Perú. Ríkjandi Englandsmeistarar Manchester City eru sem stendur í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, 25 stigum á eftir Liverpool sem situr í toppsætinu. Enn er óvíst hvenær deildin fari aftur af stað en bjartsýnustu spár reikna með að mögulegt verði að hefja leik um miðjan maí mánuð.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Bruno til bjargar Enski boltinn Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Enski boltinn „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Íslenski boltinn Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Fótbolti Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Fótbolti Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga Fótbolti Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Fótbolti Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Fótbolti Fleiri fréttir Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Pogba við það að rifta samningi sínum við Juventus Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að kýla dómara Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Sjá meira