Innlent

Fjórir greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa um 5.800 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi heimsfaraldursins.
Alls hafa um 5.800 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi heimsfaraldursins. Vísir/Vilhelm

Fjórir greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær. Allir þeir sem greindust voru í sóttkví við greiningu.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Alls eru 22 nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af enginn á gjörgæslu. Er um sama fjölda að ræða og í gær.

Sjö greindust smitaðir á landamærum í gær – þrír með virkt smit og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilvikum fjögurra.

111 manns eru nú í einangrun, en fjöldinn var 101 í gær. Þá eru 136 í sóttkví í dag, samanborið við 131 í gær.

Af þeim fjórum sem greindust í gær greindust þrír eftir svokallaða einkennasýnatöku og einn í sóttkvíar- og handahófsskimun.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 20,7, en var 21,3 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 19,1, en var 16,6 í gær.

Alls hafa 5.811 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 614 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 689 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru tekin 36 sýni í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun og 304 í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×