Innlent

Ellefu greindust innanlands

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa rúmlega 5.800 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi heimsfaraldursins.
Alls hafa rúmlega 5.800 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi heimsfaraldursins. Vísir/Vilhelm

Ellefu greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær. Sjö þeirra sem greindust voru í sóttkví, en fjórir ekki. Ekki hafa svo margir greinst innanlands á sama degi síðan 22. desember, þegar tólf greindust.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Alls eru tuttugu nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af enginn á gjörgæslu. Er um sama fjölda að ræða og í gær.

Tíu greindust smitaðir á landamærum í gær – tveir með virkt smit og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilvikum átta.

126 manns eru nú í einangrun, en fjöldinn var 127 í gær. Þá eru 279 í sóttkví í dag, samanborið við 152 í gær. Þá eru 2.725 nú í skimunarsóttkví.

Af þeim ellefu sem greindust í gær greindust tíu eftir svokallaða einkennasýnatöku og einn í sóttkvíar og handahófsskimun.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 19,9, en var 18,8 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 17,5, en var 21,3 í gær.

Alls hafa 5.845 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 643 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 483 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru tekin sjö sýni í svokallaðri sóttkvíar og handahófsskimun.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×