Erlent

Bertheus­sen dæmd í tuttugu mánaða fangelsi

Atli Ísleifsson skrifar
Húsleit var gerð á heimili Laila Bertheussen og dómsmálaráðherrans Tor Mikkel Wara á vordögum 2019.
Húsleit var gerð á heimili Laila Bertheussen og dómsmálaráðherrans Tor Mikkel Wara á vordögum 2019. EPA

Dómstóll í Noregi dæmdi í morgun Lailu Anitu Bertheussen, sambýliskonu dómsmálaráðherrans fyrrverandi, Tor Mikkel Wara, í tuttugu mánaða fangelsi fyrir hótanir og árás á æðstu stofnanir norska ríkisins.

Bertheussen var ákærð fyrir að hafa kveikt í bíl hennar og Wara, bera ljúgvitni og hótað öðrum ráðherra í ríkisstjórn Noregs, en hún var sýknuð í þeim ákærulið sem sneri að því að bera ljúgvitni. NRK segir frá

Mikið hefur verið fjallað um málið í norskum fjölmiðlum síðustu mánuði, en í máli saksóknara var Bertheussen sökuð um að hafa með gjörðum sínum ætlað að skaða aðstandendur leikritsins Ways of Seeing, á þann veg að láta það líta út fyrir að þeir hafi staðið að baki hótununum og íkveikju.  Bertheussen neitaði sök í málinu.

Dómari var sammála saksóknara um að Bertheussen hafi ætlað sér að koma sök á aðstandendur leikritsins.

Um miðjan mars 2019 var Bertheussen handtekin vegna gruns um hún hafi kveikt í bíl þeirra Wara, sem staðsettur var fyrir utan heimili þeirra, og láta það líta þannig út að glæpur hafi verið framinn.

Bertheussen var ákærð fyrir brot á 115. gr. norskra hegningarlaga sem kveður á um árás á starfsemi æðstu stofnana ríkisins. Þá var hún sakfelld fyrir að hafa sent hótunarbréf til Ingvil Smines Tybring-Gjedde, öryggismálaráðherra Noregs.

Saksóknari sagði að Bertheussen hafi ætlað sér að láta það líta þannig út að einhver, sem hafi álitið Wara og Bertheussen vera „rasista og/eða nasista“, hafi borið ábyrgð á íkveikjunni. Kom fram við aðalmeðferð að Bertheussen og vinkona hennar hafi farið á leiksýninguna í leikhúsi í Osló þann 24. nóvember 2018. Þar hafi hún tekið upp stóran hluta verksins á síma.

Í verkinu mátti sjá nokkra leikara, af erlendum uppruna, þar sem þeir segja frá tilraunum sínum að kortleggja það sem þeir lýsa með „tengslanet kynþáttahatara“ í landinu. Blandast þar inn röð stjórnmálamanna og fólks í heimi viðskipta í Noregi.

Í sýningunni voru meðal annars sýndar myndir af heimili dómsmálaráðherrans Tor Mikkel Wara. 

Wara var ráðherra úr röðum Framfaraflokksins, en flokkurinn hefur lengi barist gegn straumi innflytenda til Noregs og fyrir almennt hertri innflytjendastefnu. Wara var dómsmálaráðherra frá apríl 2018 til mars 2019.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×