Jón Daði byrjaði í dramatískum sigri og Jökull hélt hreinu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. mars 2021 21:06 Jón Daði í leik kvöldsins. Julian Finney/Getty Images Fjöldi leikja fór fram í ensku neðri deildunum í kvöld. Jón Daði Böðvarsson var í eldlínunni er Millwall vann Preston 2-1 í ensku B-deildinni. Sömu sögu er að segja af Jökli Andréssyni sem lék allan leikinn í markalausu jafntefli Exeter City gegn Walsall.
Jón Daði var í byrjunarliði Milliwall í kvöld er liðið tók á móti Preston North End. Leikurinn fór ekki byrlega af stað fyrir heimamenn en Ched Evans kom Preston yfir strax á 12. mínútu leiksins. Þegar sex mínútur voru til loka fyrri hálfleiks jafnaði Scott Malone metin og staðan því 1-1 í hálfleik. Jón Daði var svo tekinn af velli þegar fimm mínútur voru til leiksloka og aðeins tveimur mínútum síðar skoraði Mason Bennett sigurmarkið. Lokatölur 2-1 og Millwall komið upp í 10. sæti þar sem liðið er með 46 stig, aðeins sjö stigum minna en Cardiff City sem er í sjötta sæti deildarinnar. Liðin í 3. til 6. sæti ensku B-deildarinnar fara í umspil um sæti í úrvalsdeildinni. Cardiff City gerði sér lítið fyrir og vann lærisveina Wayne Rooney í Derby County 4-0 í kvöld. Í ensku D-deildinni var Jökull Andrésson milli stanganna hjá Exeter City er liðið tók á móti Walsall. Jökull er á láni frá Reading sem leikur í B-deildinni. Ekki er mikið meira um leikinn að segja en leiknum lauk 0-0. Exeter er í 9. sæti með 47 stig, tveimur stigum frá 7. sætinu en í D-deildinni fara liðin í 4. til 7. sæti í umspil.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport Dagskráin í dag: KA fer í Hafnarfjörðinn og golfið heldur áfram Sport Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Elías Már skrifar undir hjá kínversku liði Sport HM félagsliða „farsælasta keppni í heimi“ samkvæmt Infantino Sport Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport Hákon skoraði tvö í vináttuleik Sport „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport Landslið Íslands í golfi gerði það gott á EM Sport Fleiri fréttir Leik lokið: Pólland 3 - 2 Danmörk | Bæði lið í leit að fyrstu stigunum Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Njarðvík slapp með stig frá Húsavík Onana frá næstu vikurnar Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Ánægður með Arnar og er klár í haustið „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Diljá Ýr búin að semja við Brann Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? „Hrædd um að við séum að dragast aftur úr“ Óttar Magnús færir sig um set á Ítalíu Topplið ÍR tapaði þremur mikilvægum stigum Kærkominn endurkomusigur Grindvíkinga Liverpool leggur númerið hans Jota á hilluna að eilífu Segir hitann á HM hættulegan Belgar kveðja EM með sigri Spánn áfram með fullt hús stiga Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Lárus Orri byrjaður að bæta við sig Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Crystal Palace fær ekki að spila í Evrópudeildinni Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Krabbameinslyf felldi fótboltamann á lyfjaprófi Fyrst Íslendinga til að skora og leggja upp í sama leik á EM EM í dag: Nóg komið af leiðindum, kveðjustund og Copacabana „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Ísak Snær lánaður til Lyngby Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Sjá meira