Mæta til leiks gegn Ísrael: „Líður engum vel með að spila þennan leik“ Aron Guðmundsson skrifar 26. september 2026 14:00 Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands Vísir/Getty Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands sat fyrir svörum á blaðamannafundi eftir kaotískan morgun. Írland mun mæta til leiks gegn Ísrael en ísraelskir blaðamenn á fundinum sóttu hart að Heimi og fulltrúum írska knattspyrnusambandsins. Yfirgnæfandi meirihluti írska landsliðsins kaus með því að mæta til leiks á morgun gegn Ísrael. Fjögurra klukkustunda löng fundarhöld í morgun leiddu til kosningar. Einn leikmaður hefur ákveðið að draga sig úr landsliðshópnum. Írar munu bera sorgarbönd í leik morgundagsins til minningar um fórnarlömbin á Gaza. Þá mun hagnaður af leik liðsins gegn Austurríki í næstu umferð renna til hjálparstarfs á svæðinu. Írar munu ekki taka þátt í öllum hefðbundnum hefðum sem eru við lýði fyrir landsleiki. „Það líður engum vel með að spila þennan leik. Við ákváðum að spila þennan leik saman. Það er nýtt jafnvægi í þessari viðureign sem við reynum að eiga við núna,“ sagði Heimir á frestuðum blaðamannafundi írska landsliðsins áðan. Leikmenn Írlands hafa beðið um að mæta ekki í fleiri viðtöl í landsliðsverkefninu. Blaðamaður frá Ísrael sem var á fundinum var allt annað en sáttur við stöðuna og ummæli Heimis í aðdraganda verkefnisins. Hún bar ódæði Hamas þann 7. október árið 2023 undir Heimi og hvort hann sæi eftir því að hafa notað orðið „þjóðarmorð“ í tengslum við Ísrael. „Ég notaði sterkt orð svo ég útskýri mál mitt. Frá því að dregið var í riðilinn í febrúar hefur engu máli skipt hverjum við höfum verið að mæta. Þessi viðureign við Ísrael hefur alltaf verið í sviðsljósinu. Það er mikill stuðningur við Palestínu á Írlandi. Mótmælt hefur verið frá degi eitt að leikur okkar við Ísrael verði ekki spilaður á Írlandi. Pressan hefur verið yfirgengileg. Mótmælendur hafa notað slagorðið: „Ekki spila með þjóðarmorði.“ Það hafi verið rangt af honum að nota orðið þjóðarmorð en með því að spila leikinn gegn Ísrael séu leikmenn ekki að samþykkja þær hörmungar sem eigi sér stað á Gaza. Þeir spili því það séu reglur keppninnar sem þeir taka þátt í.
Yfirgnæfandi meirihluti írska landsliðsins kaus með því að mæta til leiks á morgun gegn Ísrael. Fjögurra klukkustunda löng fundarhöld í morgun leiddu til kosningar. Einn leikmaður hefur ákveðið að draga sig úr landsliðshópnum. Írar munu bera sorgarbönd í leik morgundagsins til minningar um fórnarlömbin á Gaza. Þá mun hagnaður af leik liðsins gegn Austurríki í næstu umferð renna til hjálparstarfs á svæðinu. Írar munu ekki taka þátt í öllum hefðbundnum hefðum sem eru við lýði fyrir landsleiki. „Það líður engum vel með að spila þennan leik. Við ákváðum að spila þennan leik saman. Það er nýtt jafnvægi í þessari viðureign sem við reynum að eiga við núna,“ sagði Heimir á frestuðum blaðamannafundi írska landsliðsins áðan. Leikmenn Írlands hafa beðið um að mæta ekki í fleiri viðtöl í landsliðsverkefninu. Blaðamaður frá Ísrael sem var á fundinum var allt annað en sáttur við stöðuna og ummæli Heimis í aðdraganda verkefnisins. Hún bar ódæði Hamas þann 7. október árið 2023 undir Heimi og hvort hann sæi eftir því að hafa notað orðið „þjóðarmorð“ í tengslum við Ísrael. „Ég notaði sterkt orð svo ég útskýri mál mitt. Frá því að dregið var í riðilinn í febrúar hefur engu máli skipt hverjum við höfum verið að mæta. Þessi viðureign við Ísrael hefur alltaf verið í sviðsljósinu. Það er mikill stuðningur við Palestínu á Írlandi. Mótmælt hefur verið frá degi eitt að leikur okkar við Ísrael verði ekki spilaður á Írlandi. Pressan hefur verið yfirgengileg. Mótmælendur hafa notað slagorðið: „Ekki spila með þjóðarmorði.“ Það hafi verið rangt af honum að nota orðið þjóðarmorð en með því að spila leikinn gegn Ísrael séu leikmenn ekki að samþykkja þær hörmungar sem eigi sér stað á Gaza. Þeir spili því það séu reglur keppninnar sem þeir taka þátt í.
Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Þjóðadeild karla í fótbolta Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Írland Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Sjá meira