Skoðun

Arð­söm verð­mæta­sköpun

Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar

Þegar ríkið setur fjármuni í verkefni, sérstaklega nú á Covid tímum þá er nauðsynlegt að huga að þeirri arðsemi sem fylgir hverju verkefni á vegum hins opinbera.

Uppbygging varaflugvalla og fiskútflutningur

Uppbygging varaflugvalla er nátengd ferðamennskunni sem við bindum öll vonir við að glæðist sem fyrst aftur. Flugöryggi og uppbyggingu varaflugvalla verður að sinna en þar situr Egilsstaðaflugvöllur eftir þrátt fyrir þau gífurlegu tækifæri sem liggja í flugvellinum. Tryggja verður fjármagn í malbikun flugbrautar, akbraut, flughlað og síðast en ekki síst þarf að byggja upp aðstöðu til útflutnings á fiskafurðum. Verðmætasköpun vegna aukinnar fiskframleiðslu mun margfaldast með aukinni framleiðslu og samtvinnast þar aukin verðmætasköpun með tækifærum í auknum fiskútflutningi. Tíminn frá vinnsluhöfn til útflutningshafnar og þar til varan hefur komið fyrir sjónir neytenda hefur mikil áhrif á afurðaverð. Mikilvægt er því að bregðast við og byggja upp fullnægjandi aðstöðu fyrir vöruútflutninga, það mun auka verðmætasköpun, þjóðfélaginu til heilla.

Mikilvægt að létta á samgöngukerfinu

Flutningar á ferskum fiski á vegum landsins hafa vaxið umtalsvert síðustu ár. Með því að færa fiskflutninga í flug og á sjó þá léttum við verulega á vegakerfinu. Gífurlegir fjármunir fara í vegaframkvæmdir og rétt er að minna á að ein ferð flutningabíls með tengivagn og 80% hleðslu gæti valdið svipuðum niðurbrotsáhrifum og 12.000 ferðir 1.800 kg fólksbifreiðar. Horfa þarf því á heildarmyndina og stytta leiðir til og frá útflutningsmiðstöðum.

Hvar finnum við fjármuni?

Ég orðaði í fyrri grein minni hér á Vísi að þeir 15 milljarðar sem fóru til ISAVIA á Keflavíkurflugvelli þann 12.janúar 2021 ættu með réttu að fara að hluta til varaflugvallanna til uppbyggingar. Við þurfum einungis brot af þeirri upphæð í uppbyggingu til að geta skilað gífurlegum verðmætum til baka til ríkisins og með engu móti get ég skilið af hverju öll upphæðin var sett í Keflavíkurflugvöll og enn og aftur eiga varaflugvellir að sitja á hakanum.

Ég hvet því alla þingmenn til að láta í sér heyra varðandi mikilvægi uppbyggingar varaflugvalla og ýta á að fjármunir verði sóttir í það verkefni. Sú uppbygging stuðlar að gífurlegri verðmætasköpun. Meira fæst fyrir afurðina, bein og óbein störf verða til og um leið léttum við á niðurbrotsáhrifum þungaflutninga á vegakerfi landsins.

Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi og frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar.




Skoðun

Sjá meira


×